Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Blaðsíða 116
114
læknadeild Háskóla Islands frá 1. október 1937 að telja. Hafði
hann síðan kennslu í lyfjafræði með höndum við deildina óslit-
ið til dauðadags, ef undan er skilin dvöl við frekara nám og
rannsóknir í Miinchen árið 1938—1939. Árið 1957 var hann
skipaður prófessor.
Prófessor Kristinn var mjög vel menntaður í sinni grein og
fylgdist jafnan með og kynnti sér nýjungar, er fram komu.
Hann lagði mikla alúð við kennsluna og hefur vafalaust gefið
fjöldamörgum læknanemum gott vegarnesti fram á braut. Hin
síðari ár kvartaði Kristinn þó eigi sjaldan undan því, að
kennsla þreytti hann, en svo mun flestum fara, sem lengi kenna
og í mörg horn verða að líta.
Atvikin höguðu því svo, að verulegur hluti hinna miklu
starfskrafta prófessors Kristins nýttist á nokkuð öðru sviði
en því, er hann hafði einkum aflað sér sérþekkingar á. Er hér
átt við Lyfjaverzlun ríkisins, er hann að heita má skóp úr
engu með hjálp góðra aðstoðarmanna.
Lyf javerzlun ríkisins varð undir handleiðslu prófessors Krist-
ins að þjóðþrifafyrirtæki, sem verið hefur ómissandi hlekkur
í heilbrigðisþjónustu landsmanna um margra ára skeið. Segja
má, að Lyf javerzlunin væri óskabarn Kristins, enda var honum
fátt hugstæðara síðustu vikurnar, er hann lifði, en vöxtur og
viðgangur þessa fyrirtækis svo og skipulag þess. Fátt mun og
honum hafa fallið þyngra en aðkast það, er Lyfjaverzlunin
varð stundum fyrir og ekki síður það skilningsleysi, er honum
fannst stjórnvöld oftlega sýna þessu ríkisfyrirtæki.
Kristinn Stefánsson prófessor átti sæti í fjölmörgum nefnd-
um og þótti jafnan tillögugóður. Fór hér allt saman: mikil
mannþekking, harka og einbeittni, þegar við átti, og á hinn
bóginn leikni í að miðla málum og bræða saman ólíkar skoð-
anir manna, ef með þurfti. Hans mun þannig lengi verða minnzt
fyrir störf í nefndum.
Meðal nefnda þeirra, er hann sat í, eru lyfjaskrárnefnd, lyfja-
verðlagsnefnd, og lyfjanefnd Tryggingastofnunar ríkisins. Vann
hann í nefndum þessum mikið starf og ekki sjaldan braut-