Búnaðarrit - 01.01.1925, Qupperneq 16
8
BÚNAÐARRIT
öSrum störfum, svo sem barnakenslu, verslunarstörfum
o. fl. Margir urðu þó bændur, og sumir bestu bændur.
Og öllum kom þeim að góðu liði fræðsla sú, er þeir
fengu á Eiðum, og áhrif þau, er heimilislíflð þar hafði
á þá til góðs á ýmsan hátt.
En almenningur hugsaði lítið út í hin almennu menn-
ingaráhrif, er skólinn hafði á nemendur sína, og varð
óþolinmóður að bíða eftir sjerstökum mikilsverðum áhrif-
um þaðan á búnaðinn. Fóru margir þá að telja eftir
það fje, er til skólans var lagt árlega. Menn fóru að bera
hann saman við bændabúin, og þótti kynlegt, að skól-
inn, með búi sínu, skyidi ekki standa þeim miklu framar
efnalega, þar sem hann fjekk allan þann opinbera styrk
er hann hlaut. En lítil þekking eða sanngirni kom fram
í þeim samanburði oft og tíðum. Yerður þó ekki farið
út í þann samanburð hjer. En þess skal getið, að eng-
inn efaðist nokkru sinni um trúmensku og ráðvendni
skólastjóra og konu hans í smáu nje stóru.
Þótt margir væru óánægðir með árangurinn af skóla-
haldinu, var sýnilegt, að skólabúið þreifst furðu vel
undir stjórn skólastjóra og konu hans. Á þeim 18 árum,
sem þau veittu því forstöðu, fóru efni þess stöðugt vax-
andi, svo að eignir þess voru um helmingi meiri, þegar
skólastjóri skilaði því, heldur en þegar hann tók við þvi,
og jörðin hafði verið bætt til mikilla muna. Túnið hafði
verið stækkað um meira en helming, og engjar gáfu af
sjer helmingi meira úthey, en þegar hann tók við. Er
þó jörðin á Eiðum alls ekki hentug til jarðabóta. Gripa-
stofn var allur góður, einkum sauðfjeð. Enda var með-
ferð á öllum gripum í mjög góðu lagi, og hey skorti
þar aldrei. öllum húsum og munum var prýðilega við
haldið, og mikið unnið að byggingum árlega.
Það gat nú ekki hjá því farið, að Jónas og kona hans