Búnaðarrit - 01.01.1925, Síða 38
30
bt)nað AR.B.IT
Bankinn greiðir nefndar upphæðir út þannig, að út
eru gefin veðskuldabrjaf, nafnverð þeirra er upphæð sú,
er lánuð er, talin í gjaldgengum peningum.
Veðskuldabrjef þessi voru svo keypt af Landsbank-
anum, að undanskildum bankavaxtabrjefum, sem út
voru gefin 1920, var nafnverð þeirra 6000 kr. Voru
þau af stjórn fjelagsins, eða öðrum fyrir hennar hönd,
seld með 620 kr. afföllum.
Neðangreindar tölur sýna afföllin, sem verða á veð-
skuldabrjefunum og annan áfallinn kostnað, sem lán-
tökunum fyigdi:
Ártal og Línuð ijár- Verð veðsk.br. Afíöll. Annar lán-
dagur. upph. kr. •/• af nafnv. tökukostn.
1917, 9/t 27000 00 94 1620.00 417.50
- */i. 10000.00 94 600.00 112.00
1918, u/e 15000.00 94 900.00 167.00
1919, 1B/ío 10000.00 90 1000.00 165.00
1920, 27« 18000.00 76 4320.00 522.50
— — 6000.00 1) 620.00 n
1921, 7i2 120000.00 84 19200.00 1925.00
1922, 7h 65000.00 84 10400.00 916.00
Samtals 271000.00 38660.00 4225.00
Afföllin ein verða að meðaltali 14,3°/o af hinum lán-
uðu upphæðum. Samanlagður kostnaður við lántökur
fjelagsins í veðdeild Landsbankans verður kr. 42885,00,
En auk þessara lána þarf fjelagið fleirum sinnum að
taka víxillán, að líkindum sökum þess, að aðal-lánin
eigi hafa feagist útborguð jafnhliða því, sem það þurfti
á þeim að halda í þarfir áveitunnar.
Fylgir hjer á eftir yfirlit yfir forvexti og annan
kostnað við víxillán, tekin í þarflr áveitunnar, á tíma-
bilinu 1918 til 1923. Á fyrsta ári voru engin slík lán
tekin: