Búnaðarrit - 01.01.1925, Blaðsíða 21
BÚNAÐARRIT
Skeiða-áveitan.
Eftir Pálma Einarsson búnaöarkandidat
og Sig. Sigurösson búnaðarmálastjóra.
I. Staðhættir á Skeiðunum.
Svæöi það, sem tilheyrir áveitu þessari, nær yfir
Skeiðahrepp í Árnessýslu, og liggur milli Hvítár og
Þjórsár sunnan Yörðufells, og takmarkast að sunnan af
Merkurhrauni. Undanskilin eru þó tvö efstu býlin í sveit
þessari. En auk þess telst til áveitusvæðis þess, sem
hjer verður um að ræða, lönd tveggja býla, er tilheyra
Villingaholtshreppi í Plóa, og liggja efst í þeirri sveit
austur við Þjórsá.
Stærð þessa svæðis, sem í fylgjandi greinargerð verður
um að ræða, mun vera nálægt 55 km2, breidd svæðis-
ins framan Yörðufells er ca. 6 km., en rjett ofan við
Hestfjall er hún 5 km., en þar byrjar Merkurhraun, og
liggur það fram með því að austan, lengd hraunsins frá
norðri til suðurs er, þar sem það er lengst, ca. 14 km.
Á svæði því, sem áveitunni tilheyrir, eru 30 jarðir
og 32 búendur.
Kauptún, þau sem næst liggja, eru Eyrarbakki og
Stokkseyri. Vegalengd frá þeim að syðsta býli áveitu-
svæðisins er um 27 km., en nálægt því að vera 40 km.
til þeirra býla er nyrst liggja.
Frá kauptúnum þessum liggur akfær braut upp í
gegnum hreppinn, og frá aðalveginum akfærir vegir
heim að býlunum.
Frá Reykjavík og austur þangað er vegalengdin 85 km.