Búnaðarrit - 01.01.1925, Blaðsíða 138
BÓNAÐARRIT
Um sandgræðslu.
Brjef frá Búnaðarfjelagi íslands til atyinnu- og
samgöngumála ráðuneytisins.
Með brjefl, daga, 16. okt. s.l., heflr hið háa stjórnar-
ráð óskað eftir tillögum vorum um þær breytingar, sem
álítast kynni nauðsynlegt að gerðar yrðu á frumvarpi
til fjárlaga fyrir árið 1926 á upphæðum þeim, sem í
fjárlögum 1925 eru veittar til sandgræðslu, ásamt yflr-
liti yflr hvernig verja skuli fje því, er stjórnarnefnd
Búnaðarfjelagsins telur nauðsynlegt að veitt verði í þessu
skyni fjárhagsárið 1926.
Vjer sendum yður nú þessar tillögur. Þar er gert ráð
fyrir, að kr. 20,000,00 verði varið til sandgræðslunnar, og
kr. 25,000,00 verði varið til bygginga á Stóruvöllum. Til
stuðnings þessari áætlun leyfum vjer oss að taka fram:
1. Laun sandgræösluvarðar eru áætluð sem að undan-
förnu.
2. Viðhaid og græðsla. Til þess er ætlað að þurfi um
kr. 8000,00. Mestur hluti þessa fjár gengur til hinna
nýrri stöðva á Eyrarbakka, Stóruvöllum, Klofaflötum og
í Bolungarvík.
Þá svæðin hafa verið girt, þarf mest fje í fyrstu, til
að stöðva sandfokið. Síðan verður kostnaðurinn minni,
og tekjur koma af graslendi (slægjum) þeim, sem mynd-
ast á stöðvunum.
Til viðhalds og græðslu er eigi áætlað meira en nauð-
syn krefur, til þess að græðslunni geti þokað áleiðis.
3. Til nýrra girðinga eða stöðva eru áætlaðar kr.
9000,00. Hvar þetta fje verði notað er eigi fast ákveðið.