Búnaðarrit - 01.01.1925, Side 46
38
BUNAÐARRIT
fjárhæð sú, sem vaxtast á, kr. 457886,00, og veröur
reiknað með kr. 458000.00, í því sem hjer fer á eftir:
V. Áveitan 1923—1924.
Vorið 1923 var vatni úr Þjórsá fyist veitt yfir Skeiðin.
Flóðhliðin voru opnuð 28. maí, og haldið opnum fram
til júniloka. Eigi vitum vjer hve mikið vatnsmagn hefir
flutst um svæðið á umræddu tímabili, með því að engar
athuganir voru gerðar um það, nje heldur um eftirtekj-
una af áveitunni það ár. Vísa má til ummæla hr. Ágústs
Helgasonar, bónda í Birtingaholti, um árangur áveit-
unnar þetta ár (sjá fyrnefnda grein í „Frey“, XXt. árg.,
1.—2. tbl.), og telur hann árangurinn ágætan.
Síðastliðið vor (1924) var ákveðið að athuganir skyldu
gerðar, uin hagfræðislegan árangur áveitunnar í ár, og
voru nefndar athuganír byrjaðar 1. júni, en áður en
þær voru byrjaðar, hafði sá, er þær framkvæmdi, farið
um svæðið og kynt sjer staðhættina iauslega.
Hjer var eingöngu að ræða um lauslegar athuganir,
en eigi vísindalega rannsókn. Vísindaleg rannsókn krefur
meira fje en hjer var til umráða, ennfremur lengri tíma,
meiri starfskrafta og umráð yfir landi, til að framkvæma
þar rannsóknir á.
Hjer heflr verið reynt að gera sjer grein fyrir gróður-
skilyrðunum, eins og þau eru frá náttúrunnar hendi,
og eins hinu, hvað gert heflr verið og gera þaif, til þess
að sem fylst not verði aö áveitunni. í öðru lagi hvert
vatnsmagn hafl flutst um svæðið, og hvernig það sje
að gæðum. Þá er enn eitt, sem reynt heflr verið að
komast að niðurstöðu um, og það er áhrif áveitunnar á
gróðurfarið, og hverjum breytingum það hafi tekið síðan
byrjað var að veita á.
Að iokum var, með ítarlegum samanbuiðar-athugun-
um, fengin vitneskja um meðaltals heymagn pr. ha. á