Búnaðarrit - 01.01.1925, Blaðsíða 66
58
BÚNAÐARRIT
auka eftirtekjuna og gera alla vinnu við heyskapinn auð-
veldari og ódýrarari.
Yinna sú, sem liggur í framanskráðum umbótum jarð-
anna skiftist þannig á hina ýmsu umbótaliði.
Dagsverk
Túnasljettur ................................. 4527
Túnútgræðsla, 1.) óbylt land .... 519
2.) plægt og herfað . 3300 . . 3819
Sáðsljettur ................................... 232
Girðingar, grjót og torfgarðar .... 205
gaddavírsgirgirðingar . . . 899
aðrar girðingar.......... 5907 7011
Varnarskurðir . :........................... 26
Flóðgarðar ................................... 2495
Stiflugarðar.................................... 30
Yatnsveituskurðir ............................. 165
Lokræsi......................................... 94
Áburðarhús..................................... 278
Upphleyptir tún og engjavegir.................. 153
Samtals...................................... 18830
Hjer er aðeins að ræða um þær jarðabætur, sem unn-
ar hafa verið af þeim, sem í búnaðarfjelögum eru, að-
eins fáir eru ekki meðlimir þeirra, en þó hefir verið unnið
nokkuð að jarðabótum utan búnaðarfjelaganna og þaraf
kemur meðal annars, að dagsverkatalan hjer er eigi talin
jafnhá fyrir flóðgarðana, sem hún er talin í gr. 3 hjer
að framan.
Þá er eitt atriði enn, sem bendir á batnandi búnaðar-
ástæður. Búsáhöld og einkum jarðyrkjuverkfæri eru meiri
og betri en þau voru í byrjun þessarar aldar. Um 1900
á sveitin hvorki plóg nje herfi, engar sláttu- nje rakstr-
arvjelar, fáar skilvindur og fá eða engin ökutæki. 1913
eiga þeir 40 vagna, 7 sláttuvjelar, 3 plóga, 3 herfi og
37 skilvindur. Siðan hafa aðeins bætst við 2 sláttuvjelar
og 1 rakstrarvjel, ásamt nokkrum plógum og herfum.