Búnaðarrit - 01.01.1925, Blaðsíða 83
BtfNAÐARRIT
76
. Á Ólafsvöllum er einkar vel fallið til að gera tilraunir
með aveitu og túnyrkju.
Á Ólafsvöllum er búið að leggja fram mikið fje til
umbóta. En sá er gallinn á gjöf Njarður, að flóðgarð-
arnir hafa verið gerðir óhaganlega svo þeir koma eigi
að fullum notum. í öðru lagi munu ábúendur jarða
þessara eigi þess megnugir, að hagnýta sjer þessar um-
bætur, svo að þær geti svarað rentum og afborgunum
af þeim peningum, sem í þær hafa verið lagðir. En
jarðabæturnar munu ganga úr sjer smátt og smátt, þar
til þær eru lítils virði, ef ekkert er að gert.
Að öllu þessu athuguðu, hyggjum vjer, að mjög væri
æskilegt, að tilraunabú yrði stofnað á Ólafsvöllum.
Hvað kostar tilraunabú?
Um það er eigi hægt að segja að svo stöddu, það er
undir því komið hvað búið á að vera í stórum stíl, og
hve víðtækar tilraunir á að gera þar. Vjer hyggjum
heppilegast, að byrja heldur í smáum stíl, en smá færa
svo út kvíarnar, ef vel gengur.
Stofnkostnaður búsins er aðallega falinn í bygg-
innum, áhöfn og verkfærum. Til þess að koma þessu i
framkvæmd, hyggjum vjer, að kostnaðurinn myndi verða:
íbúðarhús (eða bær)....................kr. 55000.00
Fjós, áburðarhús og hlaða fyrir 20 naut-
gripi...............................— 25000.00
Áhöfn: 20 kýr á 10000, 10 hestar 5000,
og verkfæri 5000 ...................— 20000.00
Samtals kr. 100000.00
Ef íbúðarhúsið yrði bygt sem bær, rnætti haga því
þannig, að eigi yrði bvgður meir en Vs eða hálfur bær-
inn á fyrsta ári, en vjer hyggjum, að til að fá nægilegt
húsrúm á þannig löguðu tilraunabúi, þá veiti eigi af
fjárhæð þeirri, er nefnd hefir verið.