Búnaðarrit - 01.01.1925, Side 70
62
BtJNAÐARRIT
manntöl hafa verið tekin um land alt. En með því að
það fer því nær saman Ólafsvalla kirkjusókn og áveitu-
svæðið, gefa tölur um mannfjölda í þeirri sókn nokkurn
veginn rjetta hugmynd um nefnd atriði, og fylgja þær
hjer á eftir:
1801 ........................ 256
1840 ........................ 268
1860 ....................... 288
1880 ........................ 317
1899 ........................ 313
1901 ........................ 276
1916 (159 karlar og 131 kona) . 290
1924 (164 — - 146 — ) . 310
Af þessum 310 manns í Ólafsvalla sókn, eru búsettir
á áveitusvæðinu 294, en 16 manns á jörðum, er sókn-
inni tilheyra, utan áveitusvæðisins.
Af þessum 294 manneskjum starfa:
Að búnaðarstörfum .
Framfærðir:
Gamalmenni . . .
Börn...........
Starfsm. hins opinb.
Lifir af sjálfs sín fje
Samtals
178 eða 60,6°/o
21 — 7,2—
93 — 31,6 —
1 — 0,3—
1 — 0,3—
294 100°/o
Við sjáum að fólkinu fækkar eftir aldamótin síðustu,
orsakir þess munu vera flutningur fólks úr sveitunum
til kauptúnanua, og Reykjavíkur og Vestmanneyja. Teija
má það eindreginn skaða fyrir sveit, sem hefir öll skil-
yrði til þess, að fieiri geti lifað þar heldur en nú er.
Atvinnurekendur, húsbændur og konur þeirra, ásamt
húsfólki, eru 74 manns. Vinnuhjú eru: 27 karlar og 30
konur, samtals 57 manns. Unglingar sem unnið geta