Dvöl - 01.09.1936, Blaðsíða 10

Dvöl - 01.09.1936, Blaðsíða 10
280 D V Ö L Sept.—okt. 1936 gat ekki verið rnikið athugavert við hann, fyrst auga hans var svona visst. Þegar hann var hátt- aður, féll hann undir eins í ró- legan svefn. En allt í einu hrökk hann upp aftur. Hann hafði dreymt opnu gröfina og verkamennina, sem voru að grafa hana. Hann var viss um að hafa séð þá. Það var eins og hver önnur fjárstæða að segja það ofsjónir, ])egar hann hafði séð þá með sínum eigin augum. Svo heyrði hann fótatak næturvarðarins, þar sem hann gekk framhjá húsinu. Það rauf kyrrð næturinnar svo óþægi- lega, að svitinn brauzt út um hann allan. Og svo greip skelf- ingin hann. Hann fylltist hryll- ingi, þegar hann hugsaði um hinar mörgu hlykkjóttu götur þessarar kínversku borgar, og það var eitthvað dularfullt og ægilegt við musterin og mannskepnurn- ar, sem í þeim voru, grettnar og afmyndaðar. Hann fann til megn- ustu óbeitar á lyktinni, sein stöð- ugt barst að vitum hans. Og svo var nú fólkið. Þessi mýgrútur af bláklæddum kínverskum verka- körlum og betlararnir í and- styggilegu druslunum sínum, og kaupmenn og embættismenn i síðum, svörtum skikkjum, bros- andi og mjúkir á manninn, en alltaf eins og lokaðar bækur. Honum fannst einhver hótun gegn sér felast í framkomu þeirra. Hann hataði þetta land. Kína, Hvernig stóð á því, að hann skyldi nokkurntíma fara hingað? Hann var gripinn einhverju of- boði. Hann varð að komast burt. Hann skyldi ekki vera hér árinu, ekki mánuði lengur. Eins og hon- um stæði ekki á sama um Shanghai! „0, guð minn góður,“ hrópaði hann, „bara að ég væri kominn heilu og höldnu til Englands." Hann vildi fara heim. Ef hann átti að deyja, þá vildi hann deyja í Englandi. Hann gat ekki hugs- að til að vera grafinn meðal allra þessara gulu manna með ská- höllu augun og glottandi andlit- in. Hann vildi vera grafinn heima, en ekki í gröfinni, sem hann hafði séð í dag. Hann gæti al- drei hvílt þar. Aldrei. Hvað gerði það til, þó að fólkið héldi eitt eða annað? Það mátti halda hvað það vildi. Það eina, sem máli skipti, var að komast burt, með- an tími var til. Hann fór fram úr rúminu og skrifaöi yfirstjórn fyr- irtækisins bréf, þar sem hann sagöist hafa uppgötvað, að hann væri hættulega veikur. Hann yrði að fá lausn fra störfum. Hann gæti ekki verið hér lengur en brýnasta nauðsyn krefði. Hann yrði að fara heim þegar í stað. Um morguninn fannst bréfið í hendi framkvæmdastjórans. Hann hafði hnigið niður milli skrif- borðsins og stólsins. Hann var steindauður. p. G. þýddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.