Dvöl - 01.09.1936, Blaðsíða 27
Sept.—okt. 1936
D V Ö L
297
landið og byrjað á landskiptum,
nýrækt og vatnsveitum i stórum
stíl. Azana íylgdi frjálslynda
flokknum, en margir af stuðn-
ingsmönnum stjórnarinnar ápingi
voru sósíalistar, eða fylgdu öðr-
um minni umbótaflokkum. í fyrstu
gekk allt stjórnarstarfið sæmilega.
Umbæturnar vor.u miklar og víða
komið við. Eitt af verkum hins
fyrsta þings var að semja lýð-
veldinu stjórnarskrá ogkosninga-
lög. Var pað verk ærið sundur-
leitt og margt gert með lítilli
fyrirhyggju. Skyldi safna saman
í hina n}'rju stjórnarskrá öllu því,
sem efst væri á baugi í lýðfrjáls-
um löndum. Allar konur fengu
kosningarrétt og var það þýð-
ingarmikið stig í sögu lýðveldis-
ins.
Þegar kosið var eftir hinum
nýju kosningalögum í fyrsta sinn,
biðu frjálslyndu flokkarnir gífur-
legan ósigur. Flokkur Azana
þurrkaðist út úr þinginu að kalla
mátti, en að sarna skapi efldust
íhaldsfiokkarnir. A hinum fyrstu
tveim árum lýðveldisins höíðu
prestar, munkar og aðalsmenn
undirbúið þessar kosningar gaum-
gæfilega. Kvenfólkið var miklu
meira en karlmennirnir undir á-
hrifum presta og munka og fylkti
liði móti frjálsl. flokkunum.Sumar-
ið 1933 féll stjórn Azana, og íhalds-
söm bræðingsstjórn tók við völd-
um, umbótastarfið hætti gersam-
lega. Aðallinn og klerkarnir byrj-
uðu að rífa niður flest það, sem
byrjað hafði verið á meðan um-
bótaflokkarnir réðu í landinu. En
svo var Alfons konungur heill-
um horfinn, að íhaldsflokkaruir
létu sér ekki koma til hugar, að
biðja hann að koma aftur heim í
ríki sitt hið forna. Liðu nú tv($
ár þannig, að íhaldssamir milli.
flokkar réðu landinu. Urðu oft
stjórnarskipti og eitt sinn upp-
reist í Kataloníu, sem er mesta
iðnaðarhéraðið, og vildi losa sig
úr alríkinu. Var sú uppreist b^eld
njður með harðri hendi. Azána
var handtekinn í Barcelona og
sat lengi í íangelsi, en fékk að
halda lífi og Jimum, en margir
hinir minni menn voru teknir af
lífi með mikilli grimmd.
Á útmánuðum í vetur voru ab
mennar kosningar á Spáni. Höfðu
allir vinstri flokkarnir með sér
kosningabandalag og unnu glæsi-
legan sigur. Azana varð stjórn-
arformaður að nýju, en litlu síð-
ar rak hinn n^d þingmeirihluti
forsetann frá völdum, með því að
hann var talinn andvígur hinu
nýja skipulagi. Þingið gerði Az-
ana að forseta, en lítt þekktur
maður varð stjórnarforseti. Aðal-
leiðtogar sósíalista tóku ekki
þátt í stjórnarmynduninni, en
studdu hana.
íhaldsflokkarnir höfðu látið aí
stjórn á fullkomlega stjórnarfars-
legan hátt, er þeir urðu í minni-
hluta. Að líkindum hefir þeim
þótt betur henta, að byrja ekki
innanlandsstyrjöldina strax, held-