Dvöl - 01.09.1936, Blaðsíða 47
Sept,—okt. 1936
317
D V Ö 'L
A víð og
dreif
Kettir í opinberri þjónustu.
Það er ekki óalgengt að kettir
séu í opinberri þjónustu. Þannig
eru laun til kattar nokkurs, sem
Rufus heitir, fastur liður á ríkis-
reikningi Stórbretalands. Rufus
hefir það starf að verja fjárhirzl-
ur Bretaveldis fyrir músum og eru
honum ætluð fyrir það 3 pence á
dag. Laun hans hafa þó hækkað
um þriðjung síðan fyrir stríð. —■
Rufus er sextugasti kötturinn í
þjónustu fjárhirzlunnar, en ekki
gengur þó embættið í erfðir. I
Frakklandi gætir flokkur katta
ríkisféhirzlunnar og í söfnum og
skjalavörzlum víða út um heim eru
fastir starfskettir.
í ýmsum borgum Austurlanda,
þar sem hreinlæti er í lakara lagi
og sífelld hætta á að mýs og rott-
ur dreifi sjúkdómum, eru kettir
hinar þörfustu skepnur og í
Honk-kong í Kína er hverjum hús-
eiganda gert að skyldu að eiga
minnsta kosti einn kött, og liggja
sektir við ef út af er brugðið.
Alþýðlegur komingur.
Nikulás I. stjórnandi Svart-
fjallalands (1860—1918) var einn
hinn alþýðlegasti konungur sem
sögur fara af. Hann gekk aldrei
í einkennisbúningi og auk þess að
vera æðsti stjórnandi lands síns
var hann einnig póstmeistari í
höfuðborginni Cettinje og lét inn-
rétta pósthús í konungshöllinni og
vann þar jafnvel stundum við al-
menna afgreiðslu. Hann var einnig
dómari og leikhússtjóri.
Japönsk skapgerð.
Eins og kunnugt er eru Japanir
mjög ólíkir vestrænum þjóðum,
bæði að útliti og skapgerð. Rúss-
neskur vísindamaður lýsir þeim á
þessa leið:
1. „Frá sjónarmiði hvítra
manna hefir Japaninn mjög
óþroskaða einstaklingskennd. —
Hann skoðar sjálfan sig sem hluta
af „Kokutai“ eða líkama lands-
ins. Hann er í fyrsta lagi Japani,
í öðru lagi borgari lands síns og
í þriðja lagi einstaklingur.
2. Átrúnaður á keisarann er
sterkur þáttur í lífi hvers Japana,
ekki á keisarann sem einstakling,
heldur sem miðkjarna þjóðernis-
ins, réttlætis og vizku.
3. Virðing fyrir þeim dauða er
þriðja atriðið og skýrir ef til vill hin
tíðu, og að því er virðist ástæðu-
lausu sjálfsmorð Japana. Þaðþykir
heiður að deyja fyrir eigin hendi.
4. Einkennilegur eiginleiki er
óttinn við það, að segja satt, ekki
vegna þess að það kunni að spilla
ánægju einhvers, sé um óþægileg-