Dvöl - 01.09.1936, Síða 13

Dvöl - 01.09.1936, Síða 13
Sept.—okt. 1936 D V ö L 283 sé hellt í blekbyttu og hitt, að einum blekdropa sé hellt í injólk- urfötu. Svo langt er bilið. En svartur telst sá, sem á svertingja einhversstaðar í ættinni, og hann er samkvæmt pví útilokaður úr samfélagi hvítra manna. Merkja- linan liggur ekki á neinum landá- mærum, heldur pvert og endi- langt um pjóðfélagið. Þeir, sem gera tilraun til að stelast yfir landamærin, eiga altaf á hættu að verða hraktir til baka. Lítil stúlka er tekin í fóstur af hvítum hjónum Hun fær gott uppeldi og semur sig að siðum hvítra manna. Engan grunar neitt fyr en hún verður gjafvaxta. Þá fyrst fara að koma í Ijós svertingjaeinkenni og henni er varpað miskunnarlaust út fyrir landhelgi hvítra manna. Hún á engan kost giftingar í þeirra hóp. Ungur háskólamaður, hvítur að yfirlitum, söngvinn og skemmt- inn og óvenju pýður í öllu við- móti, giftist hvítri stúlku af efn- uðum ættum. En þegar fyrsta barnið fæðist — þá er það svart. Hann fyrirfer sér, en samt ekki af pví að konan hafi verið ótrú. „Hvítir“ foreldrar geta eignast svart barn og svartir foreldrar hvitt, þegar annarlegt blóð er aftur í ættum. Það er Mendels- lögmálið, sem ríkir svo grimmi- lega á landamærum hvítra manna og svartra. í Bandaríkjunum eru um 14 milljónir negra. Þeir kornu ekki þangað með sama hætti og aðrir innfiytjendur til að leita gæfunn- ar og allsnægta í hinu nýja Gós- en. Þeir voru veiddir eins og villt dýrum alla Afríku og tluiLir í járnurn til að vinna á bómull- ar- og tóbaksekrum Suðurríkj- anna fyrir volduga óðalsbændur af engilsaxneskum uppruna. Hin- ir svörtu skógarmenn, sem voru sviptir sínu villta lífi, eiga ekki söic á peirn vandræðum, sem ná- vist negranna veldur nú. í félagi hvítra matrna. Löngu síðar. fyrir og eftir síðustu aldamót, llutti hinn sívaxandi iðnaður og námin rekstur inn lil Bandaríkjanná ó- dýrt vinnuafl frá suður og vest- ur Evrópu, ítali, Balkanbúa, Pól- verja og Rússa. Það gaf einnig stundargróða en skammgóðan. Kapitalismi B.andaríkjanna hefir sjálfur skapað sín stærstu vand- ræði. Hugmynd mín var áður sú, og vísast flestra íslendinga, að Þrælastríðið hafi leyst vandræð- in á sambúð hvítra manna og svartra. Ég hélt að kristilegt hugarfar Norðurríkjanna og blóð- ug borgarastyrjöld undir forustu eins hins ágætasta rnanns sið- 'ari tíma, Abrahams Lincoln, hefði brotið hleldci hins fjötraða og gert frelsi og jafnrétti að s.ameign svartra og hvítra Guðs barna. Ivincoln, sjálfur, hefir unnið til pess lofs, sem honum er sungið. Fingur Guðs er sýnilegur í allri hans sögu. Hann var hinn sanni

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.