Dvöl - 01.09.1936, Side 14

Dvöl - 01.09.1936, Side 14
284 D V Ö L Sept.—okt. 1936 Ameríkumaður, hár og grannur „Uncle Sam“, langleitur og kinn- fiskasoginn, sjálfmenntaður og guöhræddur bóndi og lögfræð- ingur, augun djúp og alvarleg, og pó glettnishrukkur í augna- krókunum. Við jaröarför fallinna hermanna og kirkjugarðsvígslu mælti hann á pessa leið; „Hinir hraustu hermenn hafa, lífs og liðnir, helg- að pennan reit umfram alla getu vora til að bæta par við eða draga frá . . . Hitt er oss nær að vígjast hér til hins mikla starfs, sem fram undan er og strengja pess heit, að sjá svo til, að fórn peirra verði ekki árangurslaus.“ Þegar honum var eitt sinn boð- ið í samsæti i kvenfélagi og hann sá hina risavöxnu rjómatertu, sem framreidd var í tilefni af baráttpnni fyrir frelsi prælanna, varð hann hálfu langleitari í fram- an og kinnfiskasognari og mælti: „Þið megið ekki halda, góðu konur, að ég sé eins hungraður og ég lít út fyrir að vera.“ Lin- coln á allt sitt lof og er einn hinna fáu ágætu manna, sem hafa brotið alla hlekki af sjálfum sér og eru hrós mannkynsins. En hér voru fleiri öfl að verki. Suður- og Norðurríkin voru ólík um fleira en prælahald. í Suður- rikjunum bjuggu stórbændur, lík- astir landaðli Norðurálfunnar. Þeir voru ýmist ríkir eða fátæk- ir, en flestir menntaðir og gæf- lyndir óðalsbændur, í stíl við hina hvitu. súlurn skreyttu herragarða. En menning peirra var bygð á prælahaldi eins og hin gríska og rómverka menning. í Norðaust- urríkjunum bjuggu kaupmenn og stóriðjuhöldar. Þar ríkti púrítönsk pröngsýhi og dugnaður. Norður- ríkin voru önnum kafin við að skapa hina háreistu vélmenning, sem nú ríkír, og gera hvíta með- bræður að láglaunuðum kauppræl- um. Þeirra var tíðarandinn og uppgangur hinna næstu áratuga fram að kreppunni. En nú riðar pjóðfélagsbyggingin öll, og frjáls- ir verkamenn, hvítir og svartir, meta nú lítils frelsi sitt til að ganga atvinnulausir og krefjast sömu framfærsluskyldu af ríkinu og prælarnir nutu áður hjá sín- urn húsbændum. Suðrið var orð- ið fjarlægt Norðrinu og sagði sig loks úr lögum við pað, er Lin- coln var kosinn forseti. En pá prútnuðu brjóst manna í Norðri og Vestri af tilfinning íyrir ein- ingu ríkisins og hinum röndótta fána. Tilfinningin fyrir einingu ríkjanna hafði vaxið í heila öld og orðið sterk. Stjörnunum hafði fjölgað í horni pjóðarfánans og menn gátu ekki sætt sig við að sjá pær hrapa. Baráttan fyrir ein- ingu ríkisins hófst og einingin sigraði. Það hefir haft hin heilla- vænlegustu áhrif á alla framtíð Norður-Ameríku. Heimsálfan er eitt ríki að kalla, engar víggirðing- ar, engir tollmúrar, ekkert erfða- hatur við nein landamæri. Þetta er

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.