Dvöl - 01.09.1936, Page 22

Dvöl - 01.09.1936, Page 22
292 í) V 5 L Sept.—okt. 1936 skilið pá!“ Ósk fangans var upp- fyllt. Tveim skotum var skotið í garðinum eftir skipun banka- stjórans. Seinna, eftir 10. árið, sat lög- fræðingurinn hreyfingarlaus við borðið sitt og las aðeins Nýja- testamentið. Bankastjóranum fannst það undarlegt, að maður, sem á fjórum árum hafði lesið 600 fræðibækur, skyldi eyða nærri ári í að lesa eina bók, auðskilda og alls ekki þykka. A eftir N}'rja- testamentinu kom svo trúar- bragðasaga og guðfræði. Tvö síðustu árin las fanginn óhemju ósköp af alls konar bók- um. Stundum las hann um nátt- úruvísindi, stundum bækur eftir Byron eða Shakespeare. Bréf komu frá honum, þar sem hann bað um íeinu bók um efnafræði, kennslubók í læknisfræði, skáld- sögur og nokkrar ritgerðir um heimspeki eða guðfærði. Hann las með áfergju, eins og skipreika maður á sundi innan um rekann af skipsílakinu gripur í einn viðinn eftir annan til þess að bjarga lífi sínu. Bankastjórinn minntist alls þessa og hugsaði: ,A morgun kl. 12 fær hann frelsi sitt. Samkvæmt samningn- um verð ég áð borga honum 2 milljónir. Ef ég borga, er úti um mig. Ég verð allslaus héreftir...“ Fyrir I5 árum vissi hann ekki aura sinna tal. Nú diríðist hann ekki að spyrja sjálfan sig, af hvoru hann ætti meira, pening- um eða skuldum. Brask á kaup- höllinni, áhættusöni fyrirtæki og það andvaraleysi, sem hann hafði ekki getað losað sig við, jafnvel ekki áefri árum, hafði smámsaman grafið undan eigúm hans; og hinn óttalausi, sjálfbyrgingslegi og þóttafulli peningamaður hafði orð- ið hinn venjulegi bankastjóri, skjálfandi við hverja verðsveiflu á markaðinum. „Bannsett veðmáliðý muldraði gamli maðurinn og greip um höfuðið í örvæntingu . . . „Hvers- vegna dó mannfjandinn ekki? Hann er aðeins fertugur. Hann tekur minn síðasta eyri, giftist, nýtur lífsins, braskar á kauphöll- inni, og ég verð útlits eins og öfundsjúkur betlari og heyri svo af vörum hans sömu orðin dag- lega: „Ég á þér hamingju lífs míns að þakka. Lofaðu mér að hjálpa þér.“ Nei, þetta yrði mér ofraun. Eina leiðin til að forðast gjaldþrot og smán — er að mað- urinn deyi.“ Klukkan sló þrjú. Bankastjór- inn hlustaði. Allir sváfu í húsinu. Það þaut ámátlega í frosnum trjánum úti fyrir. Hljóðlega tók hann úr peningaskápnum lykil- inn að hurðinni, sem ekki hafði verið opnuð í 15 ár, klæddi sig í jakkann ogfór út. Það var dimmt og kalt úti í garðinum og slag- viðri. Rakur nístandi vindur þaut stöðugt í trjánum. Bankastjórinn

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.