Dvöl - 01.09.1936, Side 29

Dvöl - 01.09.1936, Side 29
Sept.—okt. 1936 DVÖL 299 lendum skoðanabræðrum. Var uppreistin undirbúin og studd frá nokkrum útlendum ríkjum,parsem auðvaldið hefir komið á sinræðis- stjórn. Flestir herforingjar i sjó- her og landher Spánverja stóðu með auðvaldinu. Fengu peir vopn frá útlöndum, og fé frá innlendum stóreignamönnum, sem vildu verja hagsmuni sína og fé. L>rðveldisstjórnin byrjaði nú á m a rgskon ar u m bótastarfsemi, einkum að skipta hinum míklu jarðeighum milli smábænda og landlausra manna. Við pað óx fjandskapur hinna gömlu land- eigenda. Byrjuðu nú óeirðir og blóðsúthellingar víða un} landið. Fferinn og lögreglan voru tví- skipt eins og pjóðin og gátu litla réttarvernd veitt peim, sem órétti voru beittir. Magnaðist nú stjórn- leysið í landinu, svo að pjóðfé- lagið var í raun og veru komið í fullkomna upplausn, pegar bylt- ing nazistanna hófst. Aðstaðan á Spáni virðist vera sú, að uppreistarmenn eru fá- mennari og hafa raunverulega minna fylgi í landinu. En í peirra flokki eru auðmenn landsins, her- foringjar ogöll prestastéttin. Auk pess styðjast uppreistarmenn við nokkur erlend einræðisríki og fá par alla pá hjálp, er peir purfa, og til að efla liðsauka sinn, hafa peir fengið Mára frá Marokko sem leiguher. Með stjórninni stendur meiri hluti pjóðarinnar, en sá meirihluti er margskiptur í ósamstæóa flokka, sem ekkert sameinar nema óttinn við kúg- un auðvaldsins og prestanna. Undir eins og vopnaviðskipti byrjuðu, hallaði á stjórnina, bæði á sjó og landi, og hefir verið svo jafnan síðan. Uppreistarmenn hafa stöðugt fengið ný vopn og allt, sem til hernaðar heyrir, frá samherjum sínum í einræðislönd- unum, en Frakkar beittu sér fyr- ir opinberu banni á sölu vopna til beggja aðila. Var pessi fram- ganga Frakka algert brot á venju- legu réttarfariíhernaði. Ríkisstjórn Spánar átti að réttum alpjóða- íögum rétt á að kaupa vopn, hvar sem var, en uppreistarmenn að vera í banni. En Frakkar munu hafa óttazt, að ef peir leyfðu spönsku stjórninni vopna- kaup, pá leiddi pað til innanlands- óeirða og ef til vill til ófriðar. En ómótmælanlega er framkoma Frakka vottur pess, hve stjórnin hefir veik tök par í landi. Ef lýðveldisstjórnin hefði feng- ið keypt vopn jafn-greiðlega og uppreistarmenn, er sennilegt, að ófriðurinn hefði orðið með öðrum svip. Ríkisstjórnin ræður yfir geisimiklum gullforða, að sumra sögn 2 miljörðum, sem geymdur var í Þjóðbankanum í Madrid, en nú sennilega fluttur fjær her- línunni. Með -pví mikla fjármagni myndi stjórnin hafa staðið vel að vígi með hergagnakaup. En verzlunarbann nábúapjóðanná hef- ir gert sjálft gullið ónothæft í

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.