Dvöl - 01.09.1936, Qupperneq 42

Dvöl - 01.09.1936, Qupperneq 42
I) V Ö L Sept.—okt. 1936 högg, og auk þess hafði skrúfa eða nagli eða eitthvað þesskonar festst á frakkanum hans og rifið á hann allstóra glompu. Fjöldi fólks hópaðist umhverfis doktorinn. Lögregluþjónn hjálpaði honum á fætur, ung stúlka sópaði snjónum af honum, gömul kona at- hugaði glompuna á frakkanum með svip og látbragði, sem gaf til kynna, að hún vildi gjarna lagfæra þetta þegar í stað, en til þess skorti áhöld. Sjálfur prinsinn, sem átti þarna leið um af tilviljun, tók hatt doktorsins upp af götunni og setti á höfuð hans, og nú var allt í lagi nema frakkinn. „Hver djöfullinn, hvað er ann- ars að sjá þig, Gústaf ?“ sagði Ric- hardt héraðsdómari, þegar Henek kom inn á skrifstofu hans. „Ég varð undir sleða.“ „Það gæti mað- ur nú hugsað,“ svaraði Richardt og hló góðlátlega. „Þú getur ekki farið heim svona útlítandi, maður. Ég skal senda strák heim eftir loð- feldinum mínum og lána þér hann.“ „Þakka þér fyrir,“ svaraði Henek. Og er hann hafði fengið þessar hundrað krónur, sem hann vanhagaði um, bætti hann við: „Vertu svo velkominn til miðdegis- verðar.“ — Richardt var ókvænt- ur og venjulega eyddi hann að- fangadágskvöldi jóla hjá Henek- fjölskyldunni. Á heimleiðinni var doktor Henek í óvenjulega góðu skapi. „En sú yfirhöfn,“ tautaði hann. Hefði ég verið hygginn, væri ég fyrir löngu búinn áð fá mér svona loðfeld. Það hefði aukið sjáifstraust mitt, og virðing fólksins fyrir mér hefði einnig aukizt. Menn geta ekki ver- ið þekktir fyrir að borga lækni í loðfeldi jafn-lítið og lækni í frakkaræfii með útslitnum hnappa- götum. Fjandi var að mér skyldi ekki detta þetta í hug fyr. Nú er allt um seinan. — Hann labbaði hringferð um Kungstrádgárden í hægðum sínum. Það var farið að skyggja taisvart og fariö að snjóa aftur; kunningjar hans, sem voru þarna á stjái, þekktu hann ekki. \ „Hver veit annars, hvort of seint er að snúa við,“ hélt doktor Henek áfram við sjálfan sig. Ég er ekki gamall, og máske skjátlast mér, að því er heilsufar mitt snertir. Ég er fátækur, eins og refur í skógi, en það var John Richardt líka, og er ekkí langt að minnast. Konan mín er köld og óvingjarnleg gagn- vart mér nú í' seinni tíð. Sennilega fer hún að bera hlýjan hug til mín aftur, ef ég get útvegað meiri pen- inga og klæðst í loðfeld. Mér virð- ist henni falla John betur í geð, eftir að hann fékk sér loðfeldinn. Ef til vill hafa þau haft ofurlítið dálæti hvort á öðru áður fyrr, þeg- ar hún var ung stúlka, en hann bað hennar ekki, heldur sagði henni og fleirum, að hann legði ekki upp að giftast, ef hann hefði minna en tíu þúsund króna árs- tekjur. En ég þorði að biðja Ellen- ar, sem var bláfátæk, en langaði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.