Dvöl - 01.09.1936, Page 60

Dvöl - 01.09.1936, Page 60
330 D V Ö L Sept. —okt. 1936 áttu l)eir enn eftir sjö mílur ófarn- ar. Þeir sátu utan við veginn, þar sem gata lá þvert yfir hann og meðfram skógi; þeir voru að hvíla hnéð og töluðn úm lífið og tilveruna, eins og ungum mönn- um er títt. Báðir voru rúm sex fet á hæð, en afar-grannir; As- hurst var fölleitur, hugsandi og dálítið viðutan, Garton skrítinn i útliti, nreð mikið, hrokkið hár, og minnti ofurlitið á villimann. Þeir voru báðir mikið fyrir skáld- skap. Hvorugur var með hatt og hárið á Aslmrst var ljóst á lit- inn og mjúkt, lá í bylgjum, sem risu hátt að utan báðnmegin, eirts og hann væri alltaf að kasta ])vi aftur; hárið á Garton vareins og dökkt, ófært skógarþykkni. Þeir höfðu ekki hitt nokkra sál svo klukkutímum skipti. „Góði minn,“ sagði Garton, „meðaumkunin er bara aífeiðing sjálfsvitundarinnar; hún er sjúk- dómur síðustu fimm þúsund ára. Heimurinn var hamingjusamari án hennar." Ashurst fylgdi skýjunum eftir með augunum og svaraði: „Hún er sa.mt perla þessarar tilveru." „Blessaður vertu, öll óhamingja vorra tíma stafar af meðaumk- uninni. Hugsaðu þér dýrin, og Indíánana, sem aðeins finna til, þegar móti þeinr sjálfum blæs; og hugsteðu þér svo, hvernig við erum — aldrei lausir við kvalir, vegna þess að aðrir nrenn hafa tannpínu. Við skulum hverfa aft- ur á það stig, að finna ekki til með neinum og þá munu betri tímar koma yfir okkur.“ „Þú getur aldrei breytt satn- kvæmt þessum kenningum þín- um.“ Garton strauk hárlubbann og var hugsi. „Ef menn vilja öðlast fullan þroska, tjáir ekki að vera hör- undssár. Það er ekki rétt að neita sér um að verða hrifinn. Hvers- konar hrifning er til góðs — hún auðgar 1 ífið. “ „Já, og svo þegar hún stríðir gegn ábyrgðartilfinningunni?“ „Ó, þetta er svo enskt! Þegar talað er um hrifningu, hakþi Eng- lendingar alltaf, að átt sé við eitthvað likamfegt,.og hneykslast. Þeir eru logandi hræddir við á- stríðnna, et^ ekki girndina — ó-nei — ekki meðan þeir geta hald- ið henni leyndri.“ Ashurst svaraði ekki; hann hafði slitið upp blátt smáblóm og hélt því upp og sneri því milli fingranna. Gaukur fór að gala í tré skammt frá. Himin- hvolfið, blómin, fuglasöngurinn! Þetta voru öfgar hjá Robert! Og hann sagði: „Jæja, við skulum halda áfram og leita uþpi einhvern bóndabæ, þar sem við getum gist.“ Um leið og hann sagði þetta, tók hann eftir stúlku, sem kom ofan af heiðinni rétt hjá þeim. Hana bar við loftið, hún'hélt á köríu

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.