Dvöl - 01.11.1937, Blaðsíða 57

Dvöl - 01.11.1937, Blaðsíða 57
D V 0 L 383 dóma á sviði uppeldisins. Auk pess er húri læsilega skriíuð og þýðingin hefir tekizt vel. — Hér er ekki rúm til þess að birta ítarlegan ritdóm um þessa bók eða gera márgháttuðu efni hennar nein tæmandi skil. Þó skal sérstaklega bent á kafla eins og Ótti, Leilíir og hugarflug, Refsingar, og Uppeldi og kgnferdismál. —- Að lokum skal fólk, sem lætur sig uppeldismál varða, ein- dregið hvatt til þess að lesa þessa bók — lesa hana með athygli. V. Jóh. Gróður. Fyrir skömmu kom á bókamarkaðinn ný bók eftir frú Elinborgu Lárusdóttur. Er það þriðja bókin, sem hún lætur frá sér fara á þrern árum. Hinar tvær eru Sögur, 1935, og Anna frá Heiðar- koti, 1936. Báðar þær bækur lilutu góða dóma þeirra, sem um þær rituðu, og eins virðist ætla að verða um þessa nýju bók, að hún fari ekki varhluta af lofinu. Bókin heitir Gróður og hefir að geyma sjö sögur úr daglega lífinu, laglega skrifaðar, ekki tilþrifamiklar, en þó þannig, að menn lesa þær með nokkurri athygli. Síðasta sagan, Gróð- ur, er lengst og bezt, að því er mér finnst. Hún fjallar um viðskipti prests og bónda út af kenningunni: „Halda skaltu hvíldardaginn heilagan." Prest- urinn heldur fram hinni trúarlegu merkingu orðanna, en bóndinn álítur það guði þóknanlegra, að hann notj. hvíldardaginn, ef þörf krefur, til þess að hagnýta gróður jarðarinnar og geta með því framfleytt stórum barnahóp af eigin rainleik og dugnaði. Sögurnar eru eins og lífið sjálft — þar skiptast á skin og skuggar, erfiði og uppskera. — Þær eru látlausar myndir í laglegri umgerð. E. Bj. Rit Jónasar Hallgrímssonar eru nú öll komin út. ísafoldarprent- smiðja h. f. er útgefandi þeirra eins og svo margra annara ágætra bóka nú á síðustu árum. Þetta eru fimm bindi, og kom það fyrsta út 1928, en það síðasta nú i haust. Hér er saman komið allt, sem ligg- ur eftir Jónas Hallgrímsson í bundnu og óbundnu máli. Er það mikið, og um gæðin þarf varla að tala. Jónas er fyrir löngu orðinn einhver mesti ást- mögur, sem þessi litla þjóð hefir nokkru sinni alið, þótt „sárt væri að kenna þá svipinn hans fyrst, er sólin var slökkt undir bránum“. öll bindin til samans eru um 2000 blaðsíður, og er fjölda margt í þeim, sem aldrei hefir verið prentað áður. Æfisaga Jónasar er mikill hluti fyrsta bindisins, og liefir Matthías Þórðarson skrifað hana. Pappir er prýðilegur í bókunum og frágangur yfirleitt til sóma. Allar bækurnar kosta 80 krónur í mjög laglegu skinnbandi, og er líklegt, að þegar velja á vandaða tækifæris- gjöf handa listfengu og bókhneigðu fólki, verði Rit Jónasar Hallgrimssonar ekki sjaldan fyrir valinu. F. G. Dagleið á fjöllum lieitir síðasta bók Halldórs Kiljan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.