Dvöl - 01.04.1938, Side 48

Dvöl - 01.04.1938, Side 48
126 D V ö L Fyrir mörgum árum er bað- stofan á Hala jöfnuð við jörðu — baðstofan, sem klukkan gerði einu sinni veglegt hús í mínum augum. Þrisvar sinnum síðan hefir bær- inn verið rifinn til grunna og reistur aftur. Allar þessar bylt- ingar á bæjarhúsunum hefir klukkan staðið af sér. Hún hefir æfinlega verið flutt úr gamla bæn- um og í þann nýja, og enn tel- ur hún tímann með sömu ná- kvæmni og áður. Þótt allsstaðar væri raðað umhverfis mig hús- munum, þá myndi mér ekki þykja eins vænt um neinn þeirra eins og gömlu klukkuna. Ekki þó af því, að það sé svo mikil híbýla- prýði að henni, heldur af því, að ég hafði meira fyrir að eignast hana, heldur en nokkurn annan lilut, sem ég hefi átt. Fyrir klukkuna eina hefi ég fórnað svo að segja aleigu menni. Sú fórn kenndi mér að heyja fyrstu lífs- baráttuna, þegar ég var að kveðja bernskuárin. Ennþá tifar klukkan áfram, þar sem hún stendur á skápnum í herberginu mínu. Mér finnst, að slögin hennar vera að telja æfi- árin mín, og minna mig á það, sem ég á ógert. FYlgdarmaður: „Þessar rústir eru tvö púsund ára gainlar“. Ferðamaður: „Það getur nú ekki ver- ið, pví að ártalið er ekki orðið hœrra ennpá en 1938“. BLYGÐUNARLEYSI. Framhald af bls. 112. eða hrintu henni á milli stólaraða, gegnum þéttskipaða borðstofuna, tómt eldhúsið og þaðan í húsagarð- inn. Hún streittist á móti alla leiðina og hélt áfram að ákæra konurnar í fjölskyldunni. Hún staðnæmdist snöktandi við dyrnar og stór tár runnu niður kinnar hennar. Hún grét örlög Jessie. Hún settist grátandi á þvotta- bekkinn í húsagarðinum. Innan úr húsinu heyrði hún veikan söng kórsins. Að lítilli stundu liðinni jafnaði hún sig og fór aftur inn. Hún tók saman muni sína í eld- húsinu, svunturnar sínar og regn- hlífina, og fór sér að engu óðslega. Síðan gekk hún sem leið lá heim til móður sinnar. Cora kom aldrei áftujr í hús Studevants til þess að vinna. Nú lifir hún og móðir hennar af litla garðinum, sem þær rækta og járnaruslinu, sem karlinn selur — þegar þeim í sameiningu tekst að klófesta eitthvað af hans litlu tekjum, áður en hann kaupir áfengi fyrir þær. Sem sagt: Jenkinsnegrarnir, karlinn, kerlingin og Cora, búa í útjaðri Melton, og hvernig sem þau fara að því, þá draga þau enn- þá frani lífið. Leifur Haraldsson þýddi.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.