Valsblaðið - 01.05.1999, Síða 38
Leikmaður ársins, markakóngur, 100 leikir með Val, nýtti átta víti aí átta og gerðist atvinuumaður. Bjössi slá í gegn í sumar.
Sigurbjörn Hreiðarsson, sem er 24 ára
gamall, gekk til liðs við Val árið 1991.
Síðastliðin tvö sumur hefur hann verið
valinn leikmaður ársins í meistaraflokki
en í ár skipti hann þeirri viðurkenningu
með Kristni Lárussyni. Keppnistímabilið
var viðburðarríkt hjá Sigurbimi, hann
varð markahæstur Valsmanna, skoraði 9
mörk og setti nýtt met þann 25. ágúst
þegar hann skoraði úr tveimur vítaspym-
um í Eyjum. Ekkert félag hefur náð þeim
árangri að skora 8 mörk úr vítum á einu
keppnistímabili. I Ieik Valsmanna gegn
Víkingi þann 16. ágúst skoraði Sigur-
bjöm þrennu en Valsmaður hafði ekki
skorað þrennu í leik í efstu deild síðan
Anthony Karl Gregory skoraði þrennu
gegn Fylki í ágústmánuði 1993. Sigur-
bjöm náði þeim áfanga að spila sinn
100. leik með Val í sumar en það var
gegn Keflavík 22. ágúst. 1 nóvember-
mánuði var gengið frá atvinnumanna-
samningi Sigurbjörns við sænska úrvals-
deildarfélagið Trelleborg FF og nær
samningurinn til loka ársins 2001.
Ertu sáttur við frammistöðu þína á
síðasta tímabili, markakóngur og leik-
maður ársins ásamt Kristni Lárus-
syni?
„Já, ég er nokkuð sáttur við hana, þótt
hún hafi ekki endurspeglast í gengi liðs-
ins. Samt tel ég mig eiga mun meira inni
en ég sýndi í sumar en það kemur von-
andi seinna.”
Er draumur þinn um að gerast
atvinnumaður að rætast?
„Þegar ég var yngri var alltaf markmiðið
að komast í atvinnumennsku. Þótt ég sé
nú ekki gamall hafði sú þráðbeina stefna,
sem maður hafði, aðeins bognað. Síðan
kom tækifærið í sumar þegar þjálfari
Trelleborg sá leik og bauð mér að koma
til Svíþjóðar. Mér gekk vel og í fram-
haldinu var mér boðinn atvinnumanna-
samningur. A þessu sést ef til vill best
hversu gríðarlega mikilvægt það er að
Nýjasti atvinnumaður Islands í knatt-
spyrnu, Valsmaðurinn Sigurbjörn Hreið-
arsson. MyndP.Ó.
vera alltaf á tánum þegar maður er að
spila því maður veit aldrei hver er að
fylgjast með sent getur skipt máli fyrir
framtíð manns. Það á einnig við þótt um
æfingaleiki sé að ræða og því mikilvægt
að gefa sig alltaf 100% í leiki. Minn
gamli draumur um atvinnumennsku er
því svo sannarlega að rætast.”
Hvaða ár er þér
eftirminnilegast hjá Val?
„Árið 1992 var skemmtilegt ár. Valsliðið
var þá mjög sterkt, hópurinn góður og
Ingi Björn þjálfari. Ég var á fyrsta ári í 2.
flokki en um mitt sumarið var mér kippt
inn í meistaraflokkinn, ég upplifði bikar-
meistaratitil og fór til Portúgals í Evr-
ópukeppninni. Þetta er það ár sem stend-
ur mest upp úr hvað velgengni varðar.
Svo er það náttúrlega árið 1995 þegar
við Valsmenn gerðum hið ótrúlega að
vera nær fallnir eftir 11 umferðir með
nokkur stig en náðum svo að rífa okkur
upp þegar 7 leikir voru eftir og redda
okkur. Það var ótrúlegt. Svo gleymir
maður ekki árinu 1999, allavega ekki á
þessari öld!!”
Getur þú nefnt einn þ jálfara sem
hefur haft mest áhrif á þroska þinn
sem knattspyrnumanns?
„Ég hef lengi starfað með Kristni
Björnssyni og hann hefur háft mikil áhrif
á ntig. Mér finnst hann góður þjálfari og
ekki síst mjög sanngjöm og heilsteypt
persóna. Guðni Kjartansson er ofarlega á
blaði hjá mér en hann var þjálfari minn
hjá U-18 landsliðinu, mjög fær, kenndi
mönnum fótbolta og sagði hvað þeir
þyrftu að bæta og annað álíkt. Ingi Bjöm
er jaxl sem kemur manni í ham og auk
þess gaf hann mér fyrsta tækifærið í
meistaraflokki. Annars hafa verið svo ör
þjálfaraskipti að Hlíðarenda. Þjálfarar
hafa fengið stuttan tíma til að móta liðið
og ná því besta út úr þeim leikmönnum
sem þeir hafa haft úr að moða. Frá árinu
1992 hafa alls átta þjálfarar starfað fyrir
meistaraflokk karla án þess að það hafi
skilað miklum árangri. Það gefur auga-
leið að það getur verið nokkuð þreytandi
til lengdar að þurfa ætíð að sanna sig
fyrir nýjum þjálfara. Slíkt ástand er held-
ur ekki heppilegt fyrir unga leikmenn
sem eru að stíga sín fyrstu spor í meist-
araflokki.”
Hefurðu haft sérstaka ánægju af því
að leika með einhverjum sérstökum
leikmönnum hjá Vai og eru einhverjir
andstæðingar þér eftirminnilegir?
„Það var ntjög ánægjulegt að fá að spila
með Sævari Jónssyni, Bjama Sigurðs-
syni, Amóri Guðjohnsen og Jóni Grétari
Jónssyni. Svo hef ég náttúrlega spilað
upp allan minn Valsferil með tvíburun-
um Gumma og Ola Brynjólfssonum og
Bjarka Stefánssyni, þannig að þeir tengj-
ast mér sterkt. Annars hef ég spilað með
mörgum eftirminnilegum en af þeim sem
voru mótherjar hefur alltaf verið gaman
að eiga við Einar Þór Daníelsson þegar
maður var á vængnum. Svo ber ég virð-