Valsblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 51

Valsblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 51
Eítin Pétur Önn Sigurðsson Hinn sigursœli l.flokkur Vals. Efsta röðfrá vinstri: Þórður I. Þorbjörnsson, Maríanna Þórðardóttir, Þóra Hrund Bjarnadóttir, Rut Bjarnadóttir, Erla Súsanna Þórisdóttir, Guðrún Lilja Guðmundsdóttir. Miðröð: Guðjón Magnússon, Hildur Guðjónsdóttir, El- ísabet Guðrún Björnsdóttir, Rakel Þormarsdóttir, Erna Erlendsdóttir, Guðbjörg Sig- urðardóttir, Ásgeir Pálsson þjálfari: Neðsta röð: Jóhanna Guðmundsdóttir, Rakel Ósk Halldórsdóttir, Ingunn Einarsdóttir, Þóra Rögnvaldsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Guð- ný Petrína Þórðardóttir, Lilja Valþórsdóttir. Mynd Þ.Ó. ljós á malarvöllinn og er það frábært framtak hjá félaginu. En því miður þá bræða flóðljósin ekki snjóinn. Ef völlur- inn á að nýtast okkur yfir vetrartímann þurfum við að skoða hvað önnur félög hafa verið að gera. Stjarnan í Garðabæ hefur æft á sínum malarvelli undanfama vetur. Þeir keyra salt í völlinn og halda honum þannig snjólausum. Er þetta eitt- hvað sem við getum gert? I Valsheimil- inu er vísir að fínni lyftingaaðstöðu, en þar þarf fleiri tæki og lóð. Grasæfinga- svæðið er of lítið fyrir svona stórt félag og einnig fátæklega búið mörkum. Við æfðunt t.d. án stórra marka síðustu vik- una fyrir lokaleikinn á íslandsmótinu. Það var búið að flytja þau upp á malar- völlinn og engin eftir á grasæfingasvæð- inu. Við þurfum að setjast niður og laga þessi mál. Ég er einnig þeirrar skoðunnar að við getum bætt fagmennskuna í kringum sjálfa þjálfunina, t.d. með auk- inni þátttöku ýmissa fræðinga, næringar og læknavísinda. En þarna stendur hníf- urinn í blessaðri Búkollu. Allar breyting- ar kosta peninga og þeir vaxa ekki á trjánum. Við höfum það hvorki verra né betra heldur en þau erlendu lið sem ég þekki til. Við æfum svipað ef ekki meira og gæði þjálfunar hjá kvennaflokkum Vals eru mikil. Við þolum allan saman- burð við erlend félagslið.“ Hvernig fannst þér Valsliðin koma út samanborið við önnur lið á Gothia-Cup í sumar ? „Valsliðin komu vel út í samanburði við erlendu liðin á Gothia Cup. Báðir flokk- amir náðu stórgóðum árangri og sýndu að það er vel hægt að fara á erlend mót með háleit markmið. Valsstelpumar höfðu betri tækni og meiri leikskilning heldur en erlendu liðin og hefðu alveg getað unn- ið sína flokka. Okkar stelpur hafa enga ástæðu til að efast um eigin getu og að hafa einhverja minnimáttarkennd gagn- vart erlendum félagsliðum á ekki að þekkjast. Stelpurnar í Val fá jafnvel betri þjálfun en þekkist t.d. í Svfþjóð, en þar þekki ég vel til mála.“ Hvað með stuðning foreldra við stúlk- urnar? Eru þeir áhugasamir um gengi flokksins, styðja þeir við bakið á stúlk- unum með nærveru sinni á leikjum eða með öðrum hætti? „Stuðningur heimafyrir er mikilvægur. Rannsóknir hafa sýnt að brottfall stúlkna úr íþróttum er að stórum hluta litlum stuðningi heima fyrir að kenna. Það voru því miður fáir foreldrar sem gáfu sér tíma til að fylgjast með stelpunum í sum- ar, en þeir sem það gerðu skemmtu sér örugglega vel. Það er með stelpur eins og stráka, að skemmtilegast er að spila fyrir framan áhorfendur, en hvaðan eiga þeir að koma ef foreldrar skila sér ekki á leikina? Ég hef trú á að þetta breytist á komandi tímabili og foreldrar skili sér betur á leiki flokksins.“ Hvernig sinnir þú félagslega þættinum hjá flokknum, er eitthvað sérstakt á döfinni? „Ég hef haft þann háttinn á síðustu ár að velta ábyrgðinni yfir á hópana sem ég þjálfa. Við veljum þriggja manna skemmti- ráð í hverjum mánuði sem sér síðan um alla skipulagningu og framkvæmd fé- lagslegra verkefna. Á döfinni er keilu- ferð, en stefnan er að fara í sumarbústað einhvemtíma í febrúar.“ Nú heldur þú úti stórskemmtilegri heimasíðu flokksins, http://www.val- ur.hello.to. Hver var hugsunin að baki uppsetningu síðunnar? „Á undanförnum árum hef ég séð hund- ruðir svona heimasíðna hjá erlendum unglingaliðum. Síðumar hafa verið mis- jafnlega gáfulegar en þama fékk ég hug- myndina á sínum tíma. Hugsunin er að hafa gagnabanka þar sem stelpumar geta nálgast upplýsingar um stöðu mála hvað varðar mætingar, þátttöku í leikjum, auk fræðsluefnis af ýmsum toga. Ég ís- lenskaði tölfræðiforrit í samvinnu við Mats Bovin höfund þess og hef á heima- síðunni. Þar er að hægt að skoða hvað hver leikmaður er búin að leika marga leiki, leikskýrslur og tölfræði úr leikjun- um. Stelpumar hafa tekið þessu vel og þetta hefur síðan bætt upplýsinga- streymið á milli mín og þeirra. Æfinga- tafla hvers mánaðar kemur út á netinu þannig að gamla góða afsökunin: „ég vissi ekki að það hefði verið æfing“, er ekki tekin gild lengur.“ Hver eru þín markmið á árinu 2000? „Nú er tímabilið nýhafið og nýr mann- skapur genginn upp í 2. flokk. Markmið mín eru margþætt, en þau sem snúa að hópnum í heild eru einföld. Við förum í hvem leik og hvert verkefni til að sigra. Við ætlum okkur að halda þeim titlum sem við unnum til í sumar og bæta inn- anhússtitlunum við. Leiðin liggur síðan út í sumar og markmiðið er að bæta þann árangur sem náðist á liðnu sumri. Eink- unarorð 2. ilokks á komandi tímabili verða þau sömu og á því liðna. Stefnan er að hver leikmaður geti sagt næsta haust: „ég er glöð að ég gerði í stað þess að ég vildi að ég hefði.“ Valsblaöið 1999 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.