Valsblaðið - 01.05.1999, Page 61

Valsblaðið - 01.05.1999, Page 61
Minning + Johann N. Jóhannesson fæddup 31. jiílí 1906 - dáinn 5. janúar 1999 Með hinni öldnu frjálsíþróttakempu úr Glímufélaginu Ármanni, Jóhanni N. Jóhannessyni, er einstakur áhugamaður um íþróttir og æskulýðsmál genginn. Jóhann var bæði afreksmaður í frjáls- um íþróttum og síðan ötull forystumaður í greininni, er bar hann hag hennar fyrir brjósti til æviloka. Hann keppti undir merkjum Ármanns á sínum yngri árum jafnframt því að gegna ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Er keppnisferlinum lauk eyddi hann bróðurpartinum af tómstundum sínum í ómetanleg störf í þágu Ármanns og íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík. Þó svo að Jóhann hafi verið Armenningur af lífi og sál bar hann ætíð sérstakan hlýhug til Knattspymufélagsins Vals og naut félagið bæði krafta hans og stuðnings um árabil. Á milli- stríðsámnum þjálfaði hann t.d. fyrstu íslandsmeistarana, sem Valur eignaðist í þriðja flokki karla í knattspymu. Alla tíð fylgd- ist Jóhann grannt með starfinu í Val. Hann kom oft að Hlíðar- enda og var duglegur að sækja leiki Vals. Þá iðkuðu synir hans bæði knattspymu og handbolta á yngri árum hjá félaginu. Jó- hann og eiginkona hans heitin, Þómý Þórðardóttir, gáfu félaginu á sínum tíma sérstakan bikar, Jónsbikarinn, til minningar um fósturson þeirra, Jón Bjömsson, sem lést af slysförum 1962. Jón heitinn hafði frá frá unga aldri tekið þátt í leik og starfi í Val. Jónsbikarinn var um árabil veittur þeim knattspymuflokki í Val, sem bestum árangri náði ár hvert. Að leiðarlokum þakkar Knattspymufélagið Valur Jóhanni fyr- ir þann stuðning, áhuga og velvild, sem hann sýndi því alla tíð. Félagið sendir bömum hans og öðmm aðstandendum sínar inni- legustu samúðarkveðjur. Knattspyrnufélagið Valur + Jón Kristjánsson fæddup 26. febpúap 1929 - dáinn 13. júní 1999 Haft hefur verið á orði að dýrmætustu félagsmennimir í hverju félagi séu þeir, sem jafnan spyrja hvað þeir geti gert fyrir félag- ið sitt en ekki hvað það geti gert fyrir þá. Menn, sem mótað hafa þessa afstöðu til félagsstarfs, eru ekki á hverju strái. Þetta viðhorf einkenndi ávallt störf Jóns Kristjánssonar í þágu Knatt- spymufélagsins Vals. Með honum horftr félagið á bak einum sínum besta og dyggasta félaga. Jón fæddist í Vestmannaeyjum en flutti til Reykjavíkur á ár- inu 1956 þá 27 ára að aldri. Hann var mjög liðtækur knatt- spymumaður og hafði leikið með Þór í Vestmannaeyjum. Það var gæfa Valsmanna að Jón gekk til liðs við þá fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur. Helgaðist það ekki hvað síst af kynn- um hans í æsku af starfi séra Friðriks og KFUM en séra Friðrik mun hafa átt mikil ítök í Vestmanneyjum. Jón hóf að æfa og leika með meistaraflokki og fyrsta flokki Vals en vegna bak- meiðsla, sem um nokkurt skeið höfðu gert honum lífið leitt, varð hann brátt að leggja fótboltaskóna á hilluna. Ekki sagði hann þó skilið við félagið. Þvert á móti hófst þá löng og gifturík þátttaka hans í félagsstörfum hjá Val og síðar innan handknatt- leikshreyfingarinnar. Hann var formaður handknattleiksdeildar Vals árið 1959 og sat í stjóm deildarinnar óslitið til ársins 1966. Þá sat hann í aðalstjóm félagsins frá árinu 1967 til 1971 og aft- ur árin 1975 og 1976. Hann sat um nokkurt skeið í stjóm Hand- knattleikssambands íslands og lét um árabil unglingastarfið inn- an sambandsins einkum til sín taka. Kom hann t.d. að málum þegar unglingalandslið íslands varð Norðurlandameistari í fyrsta sinn 1971. Þá sat hann um árbil í aganefnd HSI. Jón kom mjög við sögu Valsblaðsins á sínum tíma og sat m.a. í ritnefnd þess um skeið. Félagslyndi, ósérhlífni og drenglyndi ásamt ljúfmennsku einkenndu jafnan Jón í leik og starfi. Honum hafa verið veitt öll æðstu heiðursmerki félagsins fyrir störf í þess þágu, síðast Vals- orðan, er hana fékk hann á 70 ára afmæli félagsins 1981. Jón gekk ungur að eiga eftirlifandi konu sína, Ingibjörgu Karlsdóttur. Ingibjörg er einnig dyggur Valsmaður, sem ætíð studdi eiginmann sinn í hans margvíslega og oft tímafreka stússi fyrir félagið. Þau eiga þrjú böm, þau Karl, Kristján og Þóru, og hafa þau öll tekið mikinn þátt í starfi Vals, bæði innan vallar sem utan. M.a. fetuðu bræðumir báðir í fótspor föður síns þegar þeir sátu á sínum tíma saman í stjóm handknattleiksdeildar félags- ins. Karl er sestur í stjóm deildarinnar á ný, nú sem formaður. Með Jóni er genginn sannur Valsmaður, sem til hinstu stundar unni félaginu af heilum hug. Að leiðarlokum þakkar Valur hon- um fyrir gifturík störf í þágu félagsins og óbilandi stuðning við það alla tíð. Félagið sendir Ingibjörgu og bömum þeirra, bama- bömum og öðrum aðstandendum sínar innlegustu samúðar- kveðjur. Knattspyrnufélagið Valur. Valsblaðið 1999 61

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.