Búnaðarrit - 01.01.1963, Page 101
SKYRSLUR STARFSMANNA
97
hrepps, en þar hafði ekki verið starfandi félag síðan
árið 1905, er skýrslur bárust úr Nf. Hörgslands- og IÝirkju-
bæjarhrepps. Þá staðfesti stjórnin liinn 7. sept. lög Nf.
Fellstrandarhrepps, Nf. Hvammshrepps, Nf. Laxdæla og
Nf. Miðdæla í Dalasýslu. Voru þrjú þeirra ný, en félag
liafði starfaö í Hvammshreppi árin 1905 til 1913 og
1932 til 1936.
Reykjavík, 18. jan. 1963.
Ölafur E. Stefánsson.
III. Skýrsla aðstoðarráðunautar í nautgriparækt
Starf mitt hjá Bimaðarfélagi Islands var með svipuðum
hætti og árið 1961.
Skrifstofustörf. Meginliluta starfstíma míns síðastliðið
ár var varið til vinnu á skrifstofu nautgriparæktarinnar.
Vann ég aðallega að útreikningi á skýrslum nautgripa-
ræktarfélaganna, úrvinnslu úr þeim og færslu á spjald-
skrá yfir liámjólka kýr.
Töflur yfir nythæslu kýr nautgriparæktarfélaganna og
yfir starfsemi Jteirra bjó ég til prentunar, en þessar töflur
birtast árlega í Frey og Búnaðarritinu.
Auk þessa vann ég að samningu spjaldskrár yfir naut,
sem viðurkennd hafa verið síðan 1951.
Fundir og ferSalög. Búnaðarsamband Suðurlands bar
bréflega fram þá ósk við stjórn Búnaðarfélags Islands, að
ég ferðaðist um á Suðurlandi og flytti fræðsluerindi urn
mjaltir og mjaltavélar í nautgriparæktarfélögunum og
ynni auk þess að mjaltahæfnismælingum í Laugardælum.
Svar stjórnar Búnaðarfélags Islands við þessari ósk var
játandi, og hélt ég 9 fundi á Suðurlandi (Aratungu, Laug-
arvatui, Skógum, Ásaskóla, Brautarbolti, Stóru-Sandvík,
Þjórsárveri, Flúðum og Gaulverjabæjarhreppi) og flutti
nÚNAÐARRIT
7