Búnaðarrit - 01.01.1963, Page 103
SKYRSLUR STARFSMANNA
99
á6amt Ólafi E. Stefánssyni, nautgriparæktarráðunaut, í
Kolbeinsstaða-, Eyja- og Miklholtshreppi í Hnappadals-
sýslu og Staðarsveit í Snæfellsnessýslu.
Útvarpsfrœ&sla. Ég átti sæti í útvarpsfræðslunefnd
ásamt Agnari Guðnasyni. Um störf nefndarinnar vísast til
starfsskýrslu Agnars Guðnasonar, sem jafnframt er for-
maður.
Eitt fræðsluerindi flutti ég í útvarpið á árinu.
Steingrími Steinþórssyni, fráfarandi búnaðarmála-
stjóra, vil ég þakka gott samstarf og góð kynni þann stutta
tíma, sem ég bef starfað hjá Búnaðarfélagi Islands. Jafn-
framt óska ég liinum nýja búnaðarmálastjóra, dr. Hall-
dóri Pálssyni, allra lieilla í starfi með ósk um gott sam-
starf undir lians stjórn á ókomnum árum.
Janúar1963
Jóhannes Eiríksson.
Hrossarœktarráðunauturinn 1962
Stærsta verkefni á árinu var undirbúningur og vinna
við landsmót það, sem L. H. og B. í. héldu í Skógarhól-
um í Þingvallasveit 14.—15. júlí í sumar. Ferðaðist ég
ásamt þremur dómnefndarmönnum, tilnefndum af stjórn
L. H., allt frá Kirkjubæjarklaustri vestur um að Einars-
stöðum í S.-Þing. Haldnar voru rúmlega þrjátíu sýning-
ar á tólf dögum. Var vinnudagur mjög langur, og kom
vel í ljós dugnaður félaga minna. Fyrir ánægjulegt sam-
starf þakka ég þeim liér með og vona, að lirossaræktin
megi njóta þeirra góðu hæfileika sem lengst.
Á sjálfu landsmótinu bættust sex dómarar við og yfir-
fóru dómana.
Þarna komu fram 34 graðhestar og 55 liryssur, sem
verðlaun hlutu, auk afkvæma. 1 verðlaun voru greiddar