Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 183
BÚNAÐAKÞING
179
Styrkur til nautahalds, samkv. 15. gr., þarf að
hœkka verulega og til samræmis við styrk á karldýr
til kynbóta í öðrum búfjárgreinum miðað við til-
kostnað.
Á undanförnum árum hefur kynbótanautum
fækkað um nær helming, vegna starfsemi sæðingar-
stöðvanna, en frá þeirn eru nú sæddar 49% af kúm
landsmanna. Inn í lögin þarf að setja ákvæði um
styrk til sæðingarstöðvanna til kaupa á úrvalsnaut-
um, en nokkuð á annað þúsund kálfar fæðast nú
árlega undan þeim nautum, sem mest eru notuð.
Fella mætti niður eða rýmka ákvæði um hámarks-
verðlaun á kýr, skv. 18. gr. Tilhögun sýninganna
mun að líkindum breytast í líkt horf og átt liefur
sér stað í hrossaræktinni, þannig að fram fari úrval
heima fyrir. Mætti þá ef til vill nota það fé, sem
afgangs yrði, til að létta undir með kostnaöi við
flutning gripa á sýningar.
Framlag til aukaeftirlits samkv. 20. gr. þyrfti að
liækka á hvert hú, en ef lil vill mætti að skaðlausu
fækka búunum, sem nú eru ákveðin „allt að 50“ nið-
ur í t. d. 30 bú.
Afkvæmarannsóknir á nautgripum eru nú fram-
kvæmdar á tveim stöðum á landinu á sérstökum
stöðvum, sem njóta stvrks á fjárlögum. Það
væri mjög til athugunar, að afkvæmarannsóknir
færu einnig fram á gripum, dreifðum heima á bú-
um einstakra bænda, þar sem því verður við kornið.
2. I kaflanum um sauðfjárrækt takist þessi atriði m. a.
til athugunar: Hvort ekki beri að leggja niður sauð-
fjárræktarbúin í núverandi mynd. Benda má á það,
að sauðfjárræktarfélögin vinna nú J»að hlutverk, sem
sauðfjárræktarbúin liafa unnið, en í miklu stærri
stíl.
Tekið verði til atliugunar, hvort lialda beri
óbreyttum verðlaunum á hrúta á almennum hrúta-