Búnaðarrit - 01.01.1963, Page 185
BUNAÐARÞING
181
Athugandi er einnig að leggja húið niður í hinu
fyrra formi og taka upp á Hólum eða á öðrum stað
afkvæniarannsóknastöð fyrir hross.
Hrossahúið á Kirkjubæ á Rangárvöllum, sem er
einkaeign, en nýtur styrks á fjárlögum, mun lieldur
ekki hafa gefið skýrslu um starfsemina.
4. Varðandi VI. kafla laganna telur Búnaðarþing að
breyta þurfi nokkrum atriðum:
Stofnstyrkur lil sæðingarstöðvanna þarf að liækka.
Hann er nú l/3 byggingarkostnaðar sæðingarstöðvar,
þar með talin verkfæri og annar útbúnaður, en þó
aldrei meiri en kr. 20.000.00 á stöð eða með vísi-
töluuppbót kr. 106.400.00. Þetta er mikils til of lítið.
Með vaxandi notkun sæðingarstöðvanna hafa þær
vegna vegalengda orðið að koma upp eins konar
útibúum eða dreifingarstöðvum. Inn í lögin vantar
ákvæði varðandi þessar stöðvar. Þær liafa að sjálf-
sögðu aukinn kostnað í för með sér, og er nauðsyn
að tryggja þeim með lögum stofnstyrk og rekstrar-
styrk. Þá þarf að hækka rekstrarstyrk samkvæmt 2.
lið 60. greinar.
5. Varðandi VII. kafla vísast til breytingartillagna frá
Búnaðarþingi 1962.
6. I erindi til Búnaðarþings á þingskjali nr. 29 er sér-
staklega vakin athygli á VIII. kafla laganna um
forðagæzlu og fóðurbirgðafélög, og fellst Búnaðar-
jjing á, að þar sé jiörf breytinga, er tryggi aukið
aðhald og eftirlit.
Eins er ásetningur engan veginn viðunandi og
fóðrun og liirðing búfjár, ekki sízt sauðfjárins, all-
víða langt frá því að geta talizt sæmileg. Er auðsætt,
að gildandi lagaákvæði koma hér ekki að fullu
Iialdi, og verður að freista þess að finna nýjar leiðir
til úrbóta, en málið varðar bæði virðingu og hags-
muni bændastéttarinnar.
Eins og ályktunin ber með sér, er gert ráð fyrir,