Búnaðarrit - 01.01.1964, Síða 41
SKÝRSLUR STARFSMANNA 35
69862 m3, með gröfu með dragskóflu, en 9298 m, að rúm-
taki 25519 m3, verði að grafa með gröfu með föstum armi
(traktorgröfu). Að fenginni reynslu er kostnaðurinn við
skurðgröft með föstum armi varlega áætlaður 100% meiri
en með dragskóflu.
Þar við bætist, að ef rúmtak skurða fer yfir 2—2y2 m3
á lengdarmetra, verða erfiðleikar á að koma uppmokstr-
inum nægjanlega langt frá skurðbarmi, ]ió lagt sé á báða
bakka, kostnaðurinn við útjöfnun uppmokstursins verður
mun meiri og verr af liendi leyslur, en það kemur lielzt
að sök á flötu landi. Utilokað er að nota traktorgröfur við
gröft allra stærri skurða af áður greindum ástæðum.
ASrar mœlingar: 1. Vinna liófst með finnska lokræsa-
plógnum þann 27. júní á Efri-Rauðalæk í Holtalireppi.
Ég sá um mælingar og skipulagningu vinnunnar í byrjun
og skildi ekki við þau mál fyrr en í fast form voru komin.
Þá tók við mælingum Ólafur Ásgeirsson, og gefur hann
sérskýrsbi um þessi störf sín. Alls mældi ég eða undirbjó
vinnu á um 80—90 knt af ræsum. Við lokræsagerðina er
unnið í vaktaskiptum allan sólarhringinn af 4 mönnum,
er vinna 2 og 2 saman. Tvo menn þarf við mælingar, en
þær verða að vera vel af liendi leystar, ef fullkominn
árangur á að nást. Vélasamstæðan útheimtir þannig fulla
vinnu 6 manna. Lokræsla sú, sem gerð var á árinu 1962
með plógnum, virðist lofa góðu um þurrkun lands, sem
er við liæfi plógsins.
2. Mælt var fyrir vatnsleiðslum á 6 bæjum, um 4200
m á lengd.
3. Ásamt Bjarna Finnbogasyni, liéraðsráðunaut Dala-
manna, mældi ég fyrir breytingu á Miðá í Miðdölum. Þá
athuguðum við víðtækari breytingar á Hörðudalsá, er
leita þarf samkomulags um, áður en í verður ráðizt.
4. Ásgeir L. Jónsson aðstoðaði ég nokkra daga að liaust-
inu við skurða- og vatnsleiðslumælingar.