Búnaðarrit - 01.01.1964, Blaðsíða 78
72
Bli NAöARRIT
aimaðist ég í vor. Var það nær eingöngu í Skagafirði og
á svæði þess sambands. Hafði Egill Bjainason, ráðunaut-
ur og forin. sambandsins, undirbúið það. Sainbandið not-
aði leiguliesta að nokkrum liluta, en engir liestar voru
keyptir á þessu ári. Ég sá nokkra efnilega stóðhesta, unga
og flesta ótamda, á svæðinu. Vænti ég þess, að vel verði
unnið við tamningu þeirra í vetur, því næsta fjórðungs-
mót verður í Norðurlandsfjórðungi. Okkur vanlar miklu
meira úrval tamdra stóðliesla, til þess að samböndin öll
geti lireinsað til og bætt stofn sinn að mun.
Hrossaræklarsamband SuSurlands starfaði í 18 deildum
á árinu. Það hafði fjóra leiguliesta. Merkasta tilbreytni í
stóðliestalialdi sambandsins var sú, að SVIPUR 385, frá
Syðra-Laugalandi í Eyjafirði, var leigður suður og notað-
ur handa 75 liryssum. Hann var liafður í húsi og liryss-
urnar leiddar undir hann. Þetta tókst vel, þó árangur sé
enn óljós. Eigandi Svips, Haraldur Þórarinsson, kennari,
var með hestinum og annaðist liann á allan hátt af sinni
kunnu vandvirkni og snyrtimennsku. Sambandið naut
góðrar fyrirgreiðslu búnaðarsambandsins og forráða-
manna þess, og ekki sízt Þórarins Sigurjónssonar, bú-
stjóra í Laugardælum, en þar var Svipur staðsettur. Þá er
vert að geta um ungan gæðing, slóðhestinn Stjörnu-Fák
(580) frá Reykjavík. Eigandi lians, Þorlákur Ottesen,
sýndi í verki áhuga sinn fyrir hrossarækt, með því að
liafa folann ógeltan um sinn. Hann liafði ætlað að nota
heslinn sem reiðhest sinn, cn lét undan bón minni, og al-
gjörlega af fúsum vilja að athuguðu máli, og vonast ég til,
að við fáuin liestinn lánaðan eitt vor enn, að minnsta kosti.
Komi í ljós á næstu tveimur árum, að hér sé uin gæðinga-
föður að ræða, er ég alveg viss um, að Þorlákur geldir
ekki hestinn. Þorlákur liefur unnið stórmerkilegt starf
fyrir íslenzka hestinn og hestamenn og liann gerir það
ekki endasleppl, það veit ég. Aðrir leiguhestar eru minna
reyndir. Engir nýir stóðhestar voru keyptir. Kristinn Jóns-
son, ráðunautur, formaður sambandsins, var erlendis nær
i