Búnaðarrit - 01.01.1964, Síða 242
236
BÚNAÐAKUIT
D. Móra II 116, eigandi Karl Aðalsteinsson, Smáhömr-
um, var sýnd með afkvæmum 1960, sjá Búnaðarrit, 74.
árg., bls. 310. Afkvæmin eru kollótt, livít, nema gimbrar-
lambið, sem er svart, öll framúrskarandi vel þroskuð,
gervismikil, sterkbyggð, hafa rúmmikinn brjóstkassa,
mjög sterkt, breitt og lioldgróið bak og ágæt mala- og læra-
hold. Sonurinn Lokkur er prýðilegur I. verðlauna lirútur
og stóð efstur af 3 og 4 vetra hrútum kollóttum á lirútasýn-
ingu í Kirkjubólsbreppi, ærnar eru frjósamar og ága'tar
afurðaær, og afkvæmabópurinn sem heild slórglæsilegur.
Móra er frábær afurðaær, frjósöm og mjólkurlagin.
Móra II 116 hlaut I. vcrSlaun fyrir afkvæmi.
E. Sturla 155, eigandi Karl Aðalsteinsson, Smáhömr-
uin, er keypt frá Kirkjubóli af Múlastofni. Afkvæmin eru
kollótt, bvít, sum með góða ull, en lakari á öðrum, ærn-
ar fremur grófbyggðar og ekki eins vel gerðar og móðirin.
Eldri synirnir lilutu báðir I. verðlaun, en eru læpir í þeim
flokki og lamblirúturinn ekki ásetningslamb. Sum af-
kvæmanna eru fullháfætt, losaraleg og slök í lærum.
Sturla hefur verið frjósöm og góð afurðaær.
Sturla 155 lilaut III. ver&laun fyrir afkvæmi.
F. Doppa 91, eigandi Sigurgeir Guðbrandsson, Hey-
dalsá, er lieimaalin, f. Hnykill, m. Perla. Doppa er kollótt,
fölgul á baus og fótum, með góða ull, prýðilega gerð,
holdgóð með sterka og vel setta fætur. Afkvæmin eru koll-
ótl, bvít, ræktarleg og líkjast mjög móðurinni. Sonurinn
Depill er góður 1. verðlauna lirútur, ærnar og gimbrar-
lambið sérlega þéttholda, og átakagóðar, kynfesta mikil,
en J)ó ber þess að geta, að afkvæmin eru öll undan sama
brút. Doppa var einlembd tvævetla, en tvílembd síðan og
liefur skilað að meðaltali 70.8 kg lifandi Jninga í dilkum
á ári.
Doppa 91 lilaut I. ver&laun fyrir afkvæmi.