Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 24
XX
BÚNAÐARRIT
þingslitin fara fram á hátíðarþingfundi og eittlivert gott
mál valið til afgreiðlu þar. Mikið var nú rætt um það,
livaða mál ætli að velja til afgreiðslu við þetta tækifæri.
Þá gerði Þorsteinn tillögu um, að þaðan í frá skyldi
Búnaðarþing lialdið á hverju ári í staðinn fyrir annað
livert eins og verið hafði. Færði liann sem rök fyrir til-
lögu sinni, að ekki væri svo aumt félag til, að það héldi
ekki aðalfund árlega. Á þetta féllust allir búnaðarþings-
fulltrúar nema einn, og síðan kemur Búnaðarþing saman
á hverju ári.
Hitt málið, sem hér verður nefnt, er miklu stærra, en
það er bygging Bændahallarinnar við Hagatorg í Reykja-
vík. Þegar það mál var til meðferöar á Búnaðarþingi, var
Þorsteinn einn af mestu baráttumönnum þess. Málið var
alllengi á döfinni og um það deilt eins og flest, sem
Islendingar taka sér fyrir hendur. Byggingarnefnd Bænda-
hallarinnar var kosin 1951, og varð Þorsteinn formaður
liennar. Vann liann að undirhúningi málsins, en síðan að
byggingarframkvæmdum frá því á miðju ári 1956 til 1963,
að byggingunni var lokið. Þá var kosin stjórn Bænda-
hallarinnar og Þorsteinn formaður hennar til ársloka
1968, en þá hafði loks verið samið að fullu um eignar-
hlutföll í húsinu milli Búnaðarfélagsins og Stéttarsam-
bands bænda, og tók þá reglugerð gildi fyrir það.
Bygging Bændahallarinnar var mikið áhugamál Þor-
steins, og hann var stoltur af því, að bændastétt landsins
skyldi eignast eitt stærsta og glæsilegasta hús á hinum
fegursta stað í liöfuðborg landsins, og þá ekki síður af
því, að þar er rekið á vegum bændasamtakanna eitt
bezta gistihús og veitingastaður, sem völ er á, ekki aðeins
á íslandi heldur í nálægum löndum. Þar eiga bændur
landsins nú vísan dvalarstað til gistingar 7 mánuði á ári
hverju fyrir rnjög vægt gjald, þegar þeir eru á ferð í
höfuðborginni. Hugsjón um þetta hafði Þorsteinn lengi
alið með sér, að bændasamtökin gætu átt gott húsnæði