Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 195
SKÝRSLUR STARFSMANNA 167
Alls var dreift úr flugvélum Landgræðslu ríkisins 2249,16
tonnum af áburði og fræi, sem skiptist þannig:
í landgræðslugirð'ingar ...
Á beitilönd ..............
Á afréttariönd............
Yestinannaeyjar og annað
.... 1257,20 tonn — 55,9%
.... 639,43 — — 28,4%
.... 124,00 — — 5,5%
.... 228,53 — — 10,2%
Alls 2249,16 tonn — 100,0%
1973 var alls dreift úr flugvélum Landgræðslunnar 1430,61
tonni af áburði og 20,34 tonnum af fræi eða samtals
1451,05 tonnum. Aukningin frá 1973 er því 798,11 tonn
eða um 55%.
Nokkuð hefur verið deilt á Landgræðslu ríkisins af
hálfu ,,náttúrufræðinga“ vegna áburðarausturs á hálendi
landsins. Af þessari síðustu töflu sést, bve þetta er í raun
lítið magn, sem borið er á ófriðað liálendi eða 5,5%, og
verulegur hluti af því er á lítt gróin og ógróin svæði.
Það kom enn betur í ljós í sumar, hvað Douglasflugvél-
in er vel fallin til áburðardreifingar og gjörbreytir allri
aðstöðu til landgræðslu framkvæmda. Framlag Flugfé-
lags íslands, er það gaf Landgræðslu ríkisins þessa vél,
verður því seint fullþakkað.
Eins og áður er sagt, flugu atvinnuflugmenn vélinni
endurgjaldslaust síðast liðið sumar, og tóku 38 flugmenn
þátt í þessu starfi, og var samvinnan við þá eins og bezt
verður á kosið. Atvinnuflugmenn eiga mikið lof og Jiakkir
fyrir þetta framlag til landgræðslu. Flugfélag Islands
annaðist viðhald og skoðanir á vélinni síðast liðið sumar,
og var samvinna við flugvirkja Flugfélagsins með mikl-
um ágætum. Mjólkurbú Flóamanna gaf Landgræðslunni
gamlan mjólkurbíl, og var smíðaður tankur á bílinn með
færibandi til að lilaða vélina, og tekur aðeins um 6 mín-
útur að setja 4 tonn í vélina með þessum útbúnaði.
Eins og í fyrra vann ég að nokkrum beitar- og upp-
græðslutilraunum, sá um framkvæmdir í nokkrum land-