Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 230
202
BÚNAÐARRIT
við kláða eða önnur óþrif í sauðfé op: geitfé í hólfinu
síðastliðin 3 ár eða lengur.
Verði vart óþrifa á fé á svæði, þar sem undanþágan
gildir, fellur liún þegar niður.
Ráðlierra getur ennfremur veitt frest eða undanþágu
frá böðun á einstökum búum, ef héraðsdýralæknir telur,
að lieilbrigði fjárins sé svo háttað, að því stafi hætta
af böðun um sinn eða böðun geti valdið útbreiðslu smit-
sjúkdóma.
4. gr.
Fjáreigendum og öðram, sem við hirðingu og gæzlu sauð-
fjár starfa, er skylt að hafa vakandi auga á því, hvort
sauðfé sé lialdið fjárkláða, lús eða öðrum óþrifum.
Allir þeir, sem liafa með höndum lieilhrigðisskoðun
á sláturhúsum, skulu fylgjast vel með því, livort óþrif
leynast á sláturfé og hvaðan slíkt fé er upprunnið. Skulu
þeir lialda skýrslur um það efni og tilkynna hlutaðeig-
andi héraðsdýralækni strax að lokinni sláturtíð.
5. gr.
Ef fjárkláða verður vart eða grunur leikur á því, að kind
sé kláðasjúk, skal sá, er þess verður var, tilkynna það
héraðsdýralækni og lireppstjóra eða lögreglustjóra þegar
í stað. Er skylt að halda liinu sýkta eða grunaða fé í ein-
angran á ábyrgð og kostnað eiganda, unz dýralæknir
hefur úrskurðað, hvort um fjárkláða sé að ræða. Reynist
svo vera, skipar yfirdýralæknir fyrir um nauðsynlega
böðun.
Verði fjárkláða eða annarra óþrifa á sauðfé og geitfé
vart æ ofan í æ í einhverju fjárskiptaliólfi, þrátt fyrir að
böðunarskyldu skv. almennum ákvæðum laga þessara sé
fullnægt, er landbúnaðarráðherra rétt að fyrirskipa, að
ráði yfirdýralæknis, sérstaka útrýmingarböðun í hólfinu
eða á svo stóru svæði, sem þurfa þykir. Skal þá fram-
kvæmd ýtarleg skoðun á fénaði, gengið úr skugga um f jár-