Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 419
Sauðfjárræktarfélögin 1971-1972
Eftir Svein Hallgrímsson
I. Fjárræktarfélög, sem störfuðu samkvæmt settum regl-
um, voru 87 eða einu fleiri en árið áður. Félög, sem nutu
framlags, voru þó ekki nema 83, en fjögur nutu ekki
framlags vegna þess, live síðbúnar skýrslur frá þeim
voru. Þrjú félög hafa bæzt í hóp starfandi félaga: Sf. Eyj-
arhrepps, Snæfellsnesi, Sf. Jökull, Jökuldal, N.-Múlasýslu,
og Sf. Egilsstaða og Eiða, S.-Múlasýslu. Fjárræktarfélag
Skógarstrandar, Snæf. og fjárræktarfélagið Neisti, Barða-
strandarsýslu sendu ekki skýrslur fyrir árið 1971—‘72, en
bæði nutu þau framlags á síðasta starfsári.
Félagsmenn eru álíka margir og s. 1. ár, en þá voru
þeir um 765 á 732 húum, en þetta ár voru húin 725.
Skýrslufærðar ær voru nú 53.199 eða 4.812 ám fleiri
en 1970—’71. Að meðaltali eru því 73,4 ær á hvert bú,
sem til uppgjörs kemur, samanborið við 66 ær á hú
1970—’71. Alls farast 219 ær frá hausti til sauðburðar eða
0,41%, og er það sama hlutfall og í fyrra. Þessar ær eru
ekki teknar með við útreikning á afurðum eftir á. Yfirlit
um starfsemi félaganna er gefið í töflu I.
II. Þungi ánna. Upplýsingar voru um þunga 29.277 áa
haust og vor, eða rúmlega 1000 fleiri en árið áður. Meðal-
þungi í október reyndist 58,9 kg eða 1,3 kg þyngri en
haustið 1970. Þyngstar voru ær í N.-Þingeyjarsýslu 64,0 kg
eða 2,1 kg þyngri en haustið 1970. 1 Eyjafjarðarsýslu
voru ærnar næst þyngstar, 61,8 kg, 61,7 kg í V.-lsafjarðar-
sýslu og 61,6 kg í N.-lsafjarðarsýslu, en þar eru aðeins 93