Búnaðarrit - 01.01.1943, Blaðsíða 135
Horft
til baka — til hliðar — frarn.1)
Eftir Ásgeir L. Jónsson.
Til baka.
Að loknu námi, vorið 1922, gerðist ég starfsmaður
Flóaáveitunnar, en framkvæmd hennar hófst það vor.
Við Flóaáveituna vann ég óslitið í (3 ár, en 1. ágúst
1928 geng ég í þjónustu Búnaðarfélags íslands og hef
starfað á vegiun þess síðan, eða undir þess umsjá,
og áðallega unnið við mælingar á stórum landsvæð-
um, en einnig haft á hendi leiðbeiningastarfsemi,
einkum síðustu árin. — Hins vegar er það fullkominn
misskilningur, að ég hafi nokkru sinni verið ráðu-
nautur B. f., í þess orðs merkingu.
Fram til sumarsins 1932 er starfssvið mitt einvörð-
ungu í niðurhluta Árnessýslu og vesturhluta Rangár-
vallasýslu, en lir því fer ég smám sainan að leggja
meira land undir fót.
Allt til ársins 1929 má heita, að þekking mín eða
vanþeltking á ræktunarástandi landsins og ræktunar-
framkvæmdum hyggisl einvörðungu á prentsvertunni,
]). e. hagskýrslum og blöðum, og þar voru nú upp-
Jýsingarnar ekki óglæsilegar. •—• Hagskýrslurnar
greina frá ræktunarframkvæmdum, sem eru svo stór-
sligar, að undrun sætir. — Blöðin þreyta ltapphlaup
um að lofa hin dýrmætu verk. Stjórnmálaflokkarnir
metast á um, hverjum þeirra heri dýrðin.
Um þessar mundir rak ég þó augun í nýræktarfyrir-
hrigði, sem voru mér nýstárleg, en það hlutu að vera
1) Grein þessi er birt sanikv. fyrirmælum stj. H. ísl. Ritstj.