Búnaðarrit - 01.01.1943, Blaðsíða 167
BÚNAÐARR1T
165
Sumir, sem um ]jessi mál hafa ritað, líta að vísu
þannig á, að tninaðarniennirnir, yfirleitt, séu færir
i flestan sjó; það vanti ekki annað en að þeir komi
saman á námskeið, þar sem þeir kenni hver öðrum
og samræmi sig. — Ég veit nú raunar cl<I;i, hvort
]>essi ummæli eru selt fram í fullri alvöru. — Ég
hef áður tekið ])að fram, að ég lít á ])essi stuttu
námskeið aðeins sem bráðabirgðaráðstöfun, þar til
önnur skipan kemst á.
En svo vikið sé aftur að framhaldsnámi fyrir hér-
aðsráðunauta, ])á verður að sjálfsögðu álitamál,
hvernig því skuli fyrir komið. - Vil ég í stuttu máli
drepa á nokkur aðal atriði.
'i'il að byrja með sé námstíminn 1 ár. Miða ég þessa
tímalengd við það skemmsta, sem ég tel, að geti orðið
að nokkru verulegu gagni. Ef þess er kostur að skól-
inn starfi í 2 ár, þá ber þvi að fagna. — Talað hefur
verið mn, að þetta framhaldsnám stæði í sambandi
við Hvanneyrarskóla, en gæti ekki og komið til mála,
að skólinn yj'ði i Reykjavik? Þá gæti hann t. d. notið
stuðnings Atvinnudeildar háskólans og jafnvel að
cinhverju leyti Búnaðarfélags íslands og fleiri slofn-
ana. — í Reykjavík er nægur húskostur fyrir skól-
ann sem stendur.
Inntökuskilyrði í skólann yrði væntanlega bænda-
skólapróf; gæti komið til mála að setja þar um nán-
ari fyrirmæli, er tryggðu þátttöku aðeins hæfari hluta
búfræðinga. — Miðað við eins árs nám, þar sem bæta
á brýnustu þörfina, sem sé jarðræktarhliðina, þá
yrðu aðalnámsgreinarnar þessar: Jarðræktarfræði,
grasafræði, stærðfræði, landmælingar, uppdráttagerð
og áætlanir um verklegar frainlcvæmdir (skipulagn-
ing o. f 1.). Nokkurn hluta sumarsins ættu nemendur
að starfa að landmælingum og fleiri verklegum við-
fangsefnum jafnvel á vegum Búnaðarfélags íslands.
Komist svona skóli á fót, mun hann smám saman