Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 173
BÚNAÐARRIT
171
Afkvæmi Gústa eru sum ágæt, en hin góð. Helzt
má að þeim finna, að sum þeirra hafa varla nógu
útlögumikinn og rúmgóðan brjóstkassa, enda ekki
öll nógu þung. Lömbin voru ágætlega væn, tafla 3 A,
en veturgömlu ærnar voru sumar ekki svo þungar
sem skyldi, þegar tillit er tekið til þess, að þær voru
allar geldar.
Afkvæmin báru varla með sér næga kynfestu, enda
voru sum þeirra út af ám af ólíkum uppruna.
Augljóst er, að Gústi hefur allmikið kynbótagildi,
og það má meta við hann, að þau afkvæmi hans,
sem voru undan ám af sömu ætt og hann, þ. e. frá
Laugabóli, voru jafnbetur gerð og ekki rýrari en af-
kvæmin undan óskyldum ám.
Gústi hlaut II. verðlaun fyrir afkvæmi.
B. Sómi er ættaður frá Kinnarstöðum í Reykhóla-
sveit, keyptur þaðan lamb 1949. Hann var tvílemb-
ingur undan metfés á á Kinnarstöðum. Sómi hlaut I.
verðlaun veturgamall og vó þá 90.5 kg með 107 em
brjóstummál. Hann er jötunn vænn með fram úr slcar-
andi framstæða og breiða bringu og útlögumikinn
brjóstkassa. Hins vegar hefur liann ekki að sama
skapi þétt bakhold. Fótstaðan er góð og fótleggirnir
stuttir og sverir.
Afkvæmi Sóma eru fram úr skarandi væn og hafa
ágætt brjóstkassarými, tafla 3 B. Að þessu leyti
standa þau framar afkvæmum Gústa. Þau hafa hins
vegar aðeins mjórri spjaldhrygg en afkvæmi Gústa
í heild. Nokkur af afkvæmum Sóma eru fram úr
skarandi metfé, t. d. veturgömul gimbur, Hetja að
nafni, var tvílembingur, vó nú 65 kg, með 100 cm
brjóstummál, 23 cm breiðan spjaldhrygg og 126 mm
langan fótlegg. Hetja er óaðfinnanleg á vöxt og hold
og hefur skínandi fagran og þolslegan svip. Hetja