Búnaðarrit - 01.01.1953, Blaðsíða 231
BÚNAÐARRIT
229
ætla mátti að mundi koma til slátrunar eftir fjár-
tölunni, sem í landinu er, sérstaklega þegar þess er
gætt, að öllu fé xuilli Rangár og Mýrdalssands var
slátrað. Það er síðasta fjárskiptasvæðið, og er fjár-
skiptunum lokið með því, og þegar lömb hafa verið
flutt á j)að haustið 1953, eiga háðar mæðiveikisplág-
urnar að vera horfnar úr landinu og alls staðar kom-
inn slofn, sem sé laus við þær tvær pestir. Bændur
um land allt munu fagna því og ekki að ástæðu-
lausu. Margs konar erfiðlcikar hafa fylgt mæðiveik-
inni, sem allir eru ánægðir með að losna við, og þess
utan hefur mæðiveikin orðið hæði bænduin og ríkis-
sjóði dýr. En þó að síðustu sjúku og grunuðu kind-
urnar hafi verið drepnar í haust, þá gætu enn verið
•eftir sýktar kindur, mæðiveikar, sem enginn griinur
væri enn um, að væru veikar. Þessu þurfa hændur
að gefa gaum, og vegna þess þurfa þeir á næstu árum
að fylgjast vel með heilsufari fjárins og tilkynna
sauðfjársjúkdómanefnd tafarlaust, ef nokkur minnsti
grunur er um það, að einhvers staðar sé kind veik og
hugsanlegt gæti verið, að um mæðiveiki væri að ræða.
Af þeim orsökum, er liggja lil þess, live fáum
dilkum er slátrað, má benda á hríðina 27.-29. maí
og vorkuldana og þar af leiðandi slæm lambahöld
víða. Hve mörg lömb hafa misfarizt frá hurði til þess
tíma, er fé fór á fjall, veit enginn, en áreiðanlega
skipta þau tugum þúsunda, sennilega á annað liundrað
þúsund. En í þessu sambandi verður þó að hafa
þrennt i huga, sem, eins og á stóð, varð allt til þess, að
færri lömb komu til slátrunar en húast mátti við á
eðlilegum tímum. Er þar fyrst, að lömb voru flutt á
svæðið, sem fjárlaust var eftir niðurskurðinn haust-
ið 1951 eða svæðið milli Hvalfjarðar og Rangár. Á
það voru nú flutt lömb iir Öræfum — i flugvélum
(600) —, lömb úr Þineyjarsýslum vestan Jökulsár
og hluta x'ir Eyjafirði —- flutt á bifreiðum (16 800) —
L