Búnaðarrit - 01.01.1953, Blaðsíða 211
BÚNAÐARRIT
209
hefur nautum fækkað allmikið í Eyjafirði, síðan frjó-
dælingar hófust þar, en samt á S. N. E. mun fleiri
naut en notuð eru að jafnaði á kynbótastöð (sæð-
ingastöð) þeirra á Akureyri. Eru þau höfð til vara
á víð og dreif um sambandssvæðið. Ef athugaðar eru
töflur II og III, sést, að í Eyjafirði eru nú til naut
undan ýnisu beztu kúnum í firðinum.
í flestum hreppum sýslunnar fengu nú mun færri
kýr I. verðl. en á sýningunum 1948. Ég álít, að or-
saltirnar fyrir því séu þó yfirleitt ekki þær, að kröf-
urnar hafi verið strangari nú en þá, heldur sé þeirra
að leita í því, að afurðir kúnna hafi verið minni
síðustu árin en áður, en auk útlitsdómsins var tekið
lillit lil afurðamagnsins síðustu 4 árin fyrir sýn-
inguna, eins og að framan er getið. Eyfirzkir bændur
hafa margir aukið nautgripastofn sinn undanfarið,
en ef til vill hefur fóðuröflun ekki aukizt í réttu
hlutfalli sums staðar, meðal annars vegna óhag-
stæðs árferðis. Þá minnkuðu ýmsir kjarnfóðurgjöf-
ina mjög við gengisbreytingarnar, og hafa afurðir
kúnna orðið minni af þeim sökum.
Að þessu sinni komust fáar kýr i I. verðl. í Nf.
Svarfdæla, en liltölulega margar í II. verðlaun. Vant-
aði í mörguni tilfellum lítið meir en skerpuna til
þess, að II. verðl. kýr hlytu I. verðlaun. Félagið á nú
4 II. verðl. naui, en auk þcirra hafa naut frá S. N. E.
verið noluð þar. Nf. Svarfdæla mun vera elzta naut-
griparæktarfélag landsins, sem starfað hefur óslitið
frá stofnun, en það var stofnað árið 1905. Svarfdælir
eiga miklar þakkir skilið fyrir starfsemi sína í þágu
nautgriparæktarinnar. Ég hef trú á því, að mun fleiri
kýr komist í I. verðl. hjá þeim á næstu sýningu.
Af kúm, sem komu á sýningar í hreppunum
vestan Eyjafjarðar, Árskógshreppi, Arnarneshreppi,
Skriðuhreppi, öxnadalshreppi og Glæsibæjarhreppi,
vöktu mesta athygli mína kýr þeirra bræðra Ár-
14