Búnaðarrit - 01.01.1990, Page 32
Undanfarin ár hef ég setið í nefnd á vegum menntamálaráðuneytis, sem
fjallað hefur um aðferðir við fækkun máva og hrafna. Nefnd þessi lauk
störfum á árinu með ítarlegri skýrslu og tillögum að lögum og reglugerðum.
Menntamálaráðuneytiö liggur nú á tillögum þessum, en ekki er vitað hvort
eða hvenær tillögurnar ná fram að ganga.
Á árinu hafði ég dálítil afskipti af smíði dúnhreinsunarvéla, en vélar
þessar eru nú fáanlegar á ný eftir alllangt hlé. En víða er vaxandi áhugi á
dúnhreinsun á heimaslóðum.
Á haustmánuðum aðstoðaði ég við að taka á móti nokkrum mönnum frá
Nýfundnalandi, sem hér voru m.a. til að kynna sér æðarrækt. Þeir hyggjast
leggja aukna rækt við sitt annars litla æðarvarp og óskuðu eftir að koma
aftur síðar og fá verklegar leiðbeiningar.
Eins og undanfarin ár átti ég mikið og gott samstarf við stjórn Æðarrækt-
arfélags íslands, sat m.a. alla stjórnarfundi þess og ritaöi fundargerðir. Á
aðalfundi Æ.í. flutti ég skýrslu um störfin á árinu. Reikningshald hef égséð
um fyrirÆ.Í. Á árinu flutti égerindi um æðarrækt á nokkrum fundum nt.a.
tveim deildarfundum. Auk búnaðarþáttar í ríkisútvarpi mætti ég til viðtals
um æðarrækt hjá bæði útvarpi og dagblöðum.
Selur. Á árinu var talsverð vinna lögð í að reyna að finna markaði á ný
fyrir selskinn. Að vísu kom í Ijós að Efnahagsbandalag Evrópu hefur
framlengt bann frá 1983 um innflutning á kópaskinnum. Viðhorf almenn-
ings til selskinna er óðum að breytast og selskinn (og selskinnaafurðir) frá
Grænlandi seljast nú allvel. Á árinu var talsvcrt lcitað eftir mörkuðum fyrir
selskinn og um tíma leit út fyrir að Danir ntyndu hafa milligöngu um sölu
selskinna héðan. Það mál strandaði þö um sinn m.a. vegna þess að viö
höfðum ekki nægjanlegt ntagn á lager. Áfrant er unnið íþessu máli, en búast
má við að verðið verði ekki hátt í fyrstunni, þótt einhverjir markaöir finnist.
Þá var haft samband við sútunarverksmiðju hérlendis, sem hugsanlega
tæki að sér sútun selskinna ef hreyfing kemst á þessi mál.
Um öll þessi mál hef ég haft samráð við stjórn Samtaka selabænda og á
aðalfundi þeirra í nóvember geröi ég grein fyrir stöðu mála. Á árinu hafði
Hringormanefnd milligöngu um greiðslur (cins og undanfarin ár) fyrir
veiddan sel og greiddi kr 30 fyrir hvert kíló.
Reki. Stöðugt er unnið að því að finna leiðir til að nýta betur reka þann,
sem til fellur við strendur landsins. Markaður fyrir reka í girðingarstaura
hefur dregist saman og þeim sent nýta reka til brennslu og húshitunarfjölgar
lítið. Þó var nokkrum aðilum leiðbeint í þeim efnum á árinu. Kannað var
hjá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga hvort nýta mætti reka í
staðinn fyrir innflutt kurl. Vegna saltsins í rekaviðnum reynist hann óhæfur
í þessa vinnslu. Þá er veriö að kanna hvort t.d. Vegagerðin myndi vilja leita
útboöa á spírum þeim, setn notaðar eru til merkinga á vegkanta og horfir
það mál ekki of vel. Áfram veröur þó leitað leiða til að nýta betur þau
30
i