Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 8
2
MORGUNN
reynt verði að haga sér eftir henni. Eins er nú að verða,
svo að segja með hverjum deginum, skýrari og skýrari
viðurkenning þess, að allir menn eigi heimting á skilyrð-
unum fyrir þeim andlega og líkamlega þroska, sem þeim
er áskapaður í þessu lifi. Miklar blóðsúthellingar og aðr-
ar hörmungar hefir það kostað, hvað örðugt mönnunum
hefir veitt að láta sér skiljast þetta. Enginn veit, hvað
eftir kann að vera af þeirri sáru reynslu mannanna. En
vist er um það, að aldrei hefir þessi hugsjón verið jafn-
björt og nú.
Nokkuð líkt er um þá hugsjón, sem í mínum augum
er mikilvœgust og Morgni er einkum ætlað að halda á
lofti — sambandið við annan, æðri heim. Sú hugsjón er
mikilvægust allra hugsjóna í mínum augum fyrir þá sök,
að þegar hún verður orðin veruleg eign almennings þjóð-
anna, þá hlýtur hún að ýta öllum öðrum fögrum og nyt-
sömum hugsjónum mannkynsins lengra áfram en nokkur
fær nú gert sér í hugarlund. Þegar mönnunum verður
það ljóst af reynsluþekking, að þetta lif er frarnar öllu
öðru undirbúningur undir annað líf, þá eru fengin skil-
yrðin fyrir verulega traustum framförum. Þá verður
hvötin rík til þess að sýna öðrum mönnum góðgirni og
leggja stund á réttlæti. Fyrir þessari hugsjón hefir mann-
kynið órað, að því er virðist síðan er vér höfum nokkur-
ar sögur af því, og allir trúarbragðahöfundar hafa boðað
hana. En venjulegast liefir glampinn af henni verið meira
en daufur í margskonar villumyrkri. Nú er dagurinn
runninn.
Þrátt fyrir alt og alt eru þetta óumræðilega merki-
legir og góðir tímar. Fleiri mannssálir en nokkuru sinni
áður sjá nú glögt margar af dýrmætustu hugsjónum manns-
andans. Og ekki sizt þá hugsjónina, sem eg tel mikil-
vægasta. Óhætt er að fullyrða, að þeir eru nú margfalt
fleiri en fyrir örfáum árum, sem hafa komið auga á hana
og lært að treysta henni og unna henni, af því að þeir
hafa fengið að vita, að hún er sannreynd — enda má