Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 72
66
M 0E6UNN
lega vera að fara; hann gengur norðaustur í kirkjugarð-
inn og hverfur mér þar. —
Um morguninn eftir þessa nótt fanst maðurinn, sem
mig dreymdi og eg þekti í svefninum, á bryggju á Hjalt-
eyri, skotinn gegn um höfuðið. Hann var jarðaður í norð~
austurhluta kirkjugarðsins hérna, nálægt þeim stað, sem.
eg í svefninum sá hann hverfa mér sjónum.
UII. Þribvotni gullhrmgurinn.
Sumarið 1907 di’eymdi mig, að eg stæði hér á hús-
tröppunum. Þykir mér maður koma ríðandi norðan hlaðið;:
hann reiðir undir sér stóran poka með grænu grasi og
raiklu af blómum í, en heldur á orfi með ljá í hendinni.
Þá heyri eg að Sigtryggur Þorsteinsson, heimamaður hér,
kallar upp norðan við húsið og segir: Æ, hvað er þetta?
Hvert ætlarðu nú að fara? Komumaður svarar honum
engu, en réttir út til hans aðra höndina, og var á einum
fingrinum þríbrotinn gullhringur stór, og segir: Þennan
hring fekk eg nú hjá Ola naínum Möller (o: bróður mín-
um á Hjalteyri). I því lítur hann til mín, hvessir á mig.
augun um stund, stígur svo af baki og gengur hratt
að tröppunum, eins og hann ætli upp til mín. Eg varð
afarhrædd, þvi að maðurinn þótti mér svo skuggalegur
og ægilegur. En rétt í þessu verður honum litið, og einnig
mér, suður á melana; þar koma tveir menn þeysandi al-
faraveginn og stefna hingað. Gestinum bregður við þetta,
hleypur á bak í fiýti, líður suður úr túninu, en tekur
sneiðing austur fyrir veginn á svig við hina, meðan þeir
ríða fram hjá. Þeir, sem komu, voru Guðmundur Hannes-
son, fyrrum héraðslæknir á Akureyri, og fylgdarmaður
haus. G. H. heilsar mér, og eg segi við hann: O, hvað>
eg varð fegin að þér komuð núna; eg var svo hrædd við
manninn, sem fram hjá ykkur reið; hver ætli hann sé?'