Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 33
MOEGUNN
27
ekki. Leyfðu þér aldrei að dæma um neitt að órannsök-
uðu máli. Varðveittu hug þinn og tungu frá slíku athæfi.
Alt, sem er satt, er frá guði. Hver eem er á móti ein-
hverju, sem er satt, hann berst á móti guði. Og því meira
vald, sem andi sannleikans fær yfir oss, því betur skilst
oss, hve mikla synd vér drýgjum með því að veita því
mótspyrnu, sem er satt og rétt, einkum þegar það snei’tir
þau málin, sem mestu varða líf mannanna. Hvernig þú
hagar þér gegn sannleikanum, kann að hafa meiri og lang-
vinnari afieiðingar en þig nú grunar. Afstaðan til anda
sannleikans hér í heimi getur haft mikil áhrif á hagi þína
og líðun, er inn í nýjan heim kemur. Þú manst, að Krist-
ur talaði utn syndina gegn heilögum anda.. Andi sann-
leikans er hinn heilagi andi. Öll synd gegn sannleikan-
um er því að- einhverju leyti synd gegn heilögum anda.
Og hún verður ekki fyrirgefin, sagði Jesús sjálfur. Hana
verður hver og einn að afplána með einhvers konar þján-
ingum eða þrautum, ef ekki hérna megin, þá í öðrum
heimi.
Þetta þurfurn vér öll að hugfesta oss. Þessu ætti
engin kirkjudeild né nokkur boðberi kristindómsins að
gieyma. Jesús hefir ekki látið skrifa né sjálfur skrifað
neinar reglur eða leiðbeiningar utú trú og kenning, til
þess að þær gætu verið fastur mælikvarði á öllum öld-
um. Nei, segir hann, ef þér elskið mig og haldið mitt
mikla kærleiksboðorð, þá á elcki að setja yður ritaðar
reglur urn, hvernig þér eigið að haga yður að öðru leyti
á sérhverri tíð. Tímarnir líða og heimurinn er stöðugri
breyting háður, og ritaðar reglur úreltast og ganga úr
gildi. En eg mun biðja föðurirtn, og hann mun gefa yður
það, sem helzt og varir við, hvernig sem alt breytist:
anda sannleikans.
Þarfnast ekki kirkja vor þess, að nýr þytur frá anda
sannleikans fari um hana? Veitir henni af að heyra gný
sem af aðdynjandi sterkviðri? Hugsa ekki of margir
þjónar hennar um bókstafsfyrirmæli og er ekki um of