Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 85
MORGUNN
79-
nægja að verja sig og hrinda frá sér þeira ásökunum, sera
að þeira sé beint. »Rétta bardagaaðferð spíritistanna, er
sú sem stendur«, segir hann, »að koma með ákveðna
spurning og krefjast ákveðins svars. Spurningin er þessi:
Stendur kirkjan sjdlf við kenningar sínar?«.
En rétt virðist oss að minna á það í þessu sambandi,
að þó að mörgum þyki enska biskupakirkjan hafa verið
sein á sér i þessu máli, og þó að mikið só þar um van-
þekking á því og hleypidóma gegn því, þá hefir aldi’ei af
kirkjustjórnarinnar hálfu verið gerð nokkur tilraun til
þess að amast við neinum prestum, sem hafa boðað spíri-
tismann kappsamlega á prédikunarstólunum, í fyrirlestr-
um og í prentuðum ritum.
Auk nefndar þeirrar, sem getið er um héraðframan,
að erkibiskupinn í Kantaraborg ætli að skipa, er nú talað
um aðra enska kirkjumannanefnd, sem rannsaka eigi
spíriti8mann. Lundúna-blaðið »Star« segir frá því, að-
miklar líkur séu til þess, að allar enskar kirkjudeildir
skipi í sameiningu sérstaka nefnd í þvi skyni. Blaðið segir,
að meðal enskra presta yfirleitt sé sterk tilfinning þess,
að nauðsynlegt sé að kirkjudeildirnar láti ótvírætt uppi,
hvernig þær ætli að snúast við spiritismanum og kenn-
ingum hans, og að enn meira hafi þeir fundið til þeirrar
þarfar eftir að Conan Doyle hefði svarað einum kirkju-
höfðingjanum, sem ráðist liafði á spíritismann. Spíritisminn
er að grafa um sig í mörgum kirkjudeildunum, segir blaðið
ennfremur, og framkvæmdagjarnir prestar finna til þess,
að eitthvað verður að gera, til þess að fullnægja þeim
kröfum, er sprottið hafa upp af þeim hugarfarsbreytingum,
sem ófriðurinn hefir vakið.
Hvort sem nú mikið eða lítið verður úr þessari nefnd-
arskipun, þá er þetta tal sæmilega ljós vottur um það,
hvað spíritisminn er að eflast á Englandi.