Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 9
MORGUNN
3
segja, að hlið annars heims hafi opnast með dásamlegum
hætti fyrir mönnunum á tveim síðustu mannsöldrunum.
Bönd hinna og annara villukenninga eru að hrökkva sund-
ur. Mennirnir eru miljónum saman að verða frjálsir í
anda — ekkert síður hér á landi en í öðrum löndum.
Hugsjónir eru að rætast. Fyrir því hygg eg, að timinn
sé kominn til þess að bjóða mönnum þetta tímarit.
Okkur, sem riðnir erum við útgáfu þess, langar til,
að það verði ofurlítill gluggi, er eitthvað af morgungeisl-
um góðra hugsjóna geti skinið gegnum, og með þeim liætti
komist inn i sem flest heimili þessa lands.
Hnna^a líf.
Erindi flutt í SálarramisóknafÉlagi Islands, 20. marz 1919.
[riokkuö stytt.]
I.
Sálarrannsóknirnar hafa þegar fært fjölda manna full-
nægar sannanir á framhaldslífi persónuvitundarinnar og
veitt öðrum grundvöll undir örugga trúarvissu um það.
Þetta er ærið starf, og ef svo er, sem eg hygg og margir
aðrir, að framhaldslífið sé í raun og veru sannað hverj-
um þeim, sem vill sjá og heyra, þá má telja það út af
fyrir sig ákaflega mikilvægt — svo mikilvægt, að eg veit
ekki annan hlut mikilvægari. Reyndar hefir mannkynið,
sem betur fer, aldrei farið alveg varhluta af eilífðarviss-
unni — eða að minsta kosti ekki af eilífðarvoninni, —
en mikill munur er þó á fþvi, að sitja við hálfbrunna
kyndla horfinna tíma, eða hinu, að sjá morgunroðann
koma ofan fjallið, eins og engil i gullnum herklæðum, svo
sem skáldið (H. G. Wells) kemst að orði. Og mestan
1*