Morgunn - 01.04.1920, Blaðsíða 32
26
M 0 R G U N N
halda boðorð hana. Já, af því að sú elska er ekki ósann-
ur og framkvæmdarlaus kærleikur. Þú þekkir það af
öðrum sviðum lífsins, að sönn elska er ekki óstarfandi,
heldur verður að hafast eitthvað að fyrir þann eða það,
sem hún óskar að lúta og þjóna. Ef þú elskar drottin
Krist, þá reynir þú eftir mætti að gera vilja lians og laga
þig eftir honum. Þá gerir þú þér far um að halda fyrir-
mæli hans um trú og hlýðni, um sjálfsafneitun og eftir-
breytni eftir honum.
Og gleymið nú ekki, hvert fyrirheit Jesús gaf þeim,
sem gerðu þetta, sem elskuðu hann svo, að þeir vildu
halda boðorð hans. »Og eg mun biðja föðurinn, og hann
mun gefa yður annan huggara, til þess að hann sé hjá yður
eilíflega, anda sannleikans«. — Andi sannleikans, það er gjöf-
in, sem þeir liljóta, er elska Krist og vilja halda boðorð lians.
Það var sú gjöfln, sem postularnir öðluðust hinn fyrsta hvita-
sunnudag. Andi sannleikans, það var huggarinn, sem
heitið var að senda þeim. Ekid rétt í bili — svona stund-
arkorn þennan fyrsta hvítasunnudag — nei, »til þess að
hann sé hjá yður eilíflega«, sé hjá þér daglega, hvert ein-
asta sinn, er þú átt að velja um það, sem vandasamast
er í trú og breytni, sé hjá þér æfl þína á enda hér í tím-
anum, og inn á ný svið tilverunnar, þar sem enginn tími
er til lengur. Líka þar verður þú að velja og hafna.
Hefir þú gert þér þetta ljóst, hvort þú þráir þessa
miklu gjöf, þennan huggara á sumurn mestu úrslitastund-
um lífsins: anda sannleikans? Ef þú átt hann, þá spyr
þú ekki fyrst um, er ný kenning mætir þér,eins og sú,
sem vér erum að tala um, hvort hún komi heim við trú-
arjátningar og kenningar fyrri tíðar manna. Það er hættu-
legt. Það gerðu Farísear og fræðimenn forðum í Jerú-
salem og líflétu Krist sem þann, er leiddi lýðinn i villu.
Ut í þá ófæru getur fastheldnin við hið gamla leitt oss.
Andi sannleikans kennir oss að leggja alt annan mæli-
kvarða á hlutina. Hann segir, nei býður oss með heilagri
alvöru: Gakk þú úr skugga um, hvort það er satt eða