Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 85

Morgunn - 01.04.1920, Page 85
MORGUNN 79- nægja að verja sig og hrinda frá sér þeira ásökunum, sera að þeira sé beint. »Rétta bardagaaðferð spíritistanna, er sú sem stendur«, segir hann, »að koma með ákveðna spurning og krefjast ákveðins svars. Spurningin er þessi: Stendur kirkjan sjdlf við kenningar sínar?«. En rétt virðist oss að minna á það í þessu sambandi, að þó að mörgum þyki enska biskupakirkjan hafa verið sein á sér i þessu máli, og þó að mikið só þar um van- þekking á því og hleypidóma gegn því, þá hefir aldi’ei af kirkjustjórnarinnar hálfu verið gerð nokkur tilraun til þess að amast við neinum prestum, sem hafa boðað spíri- tismann kappsamlega á prédikunarstólunum, í fyrirlestr- um og í prentuðum ritum. Auk nefndar þeirrar, sem getið er um héraðframan, að erkibiskupinn í Kantaraborg ætli að skipa, er nú talað um aðra enska kirkjumannanefnd, sem rannsaka eigi spíriti8mann. Lundúna-blaðið »Star« segir frá því, að- miklar líkur séu til þess, að allar enskar kirkjudeildir skipi í sameiningu sérstaka nefnd í þvi skyni. Blaðið segir, að meðal enskra presta yfirleitt sé sterk tilfinning þess, að nauðsynlegt sé að kirkjudeildirnar láti ótvírætt uppi, hvernig þær ætli að snúast við spiritismanum og kenn- ingum hans, og að enn meira hafi þeir fundið til þeirrar þarfar eftir að Conan Doyle hefði svarað einum kirkju- höfðingjanum, sem ráðist liafði á spíritismann. Spíritisminn er að grafa um sig í mörgum kirkjudeildunum, segir blaðið ennfremur, og framkvæmdagjarnir prestar finna til þess, að eitthvað verður að gera, til þess að fullnægja þeim kröfum, er sprottið hafa upp af þeim hugarfarsbreytingum, sem ófriðurinn hefir vakið. Hvort sem nú mikið eða lítið verður úr þessari nefnd- arskipun, þá er þetta tal sæmilega ljós vottur um það, hvað spíritisminn er að eflast á Englandi.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.