Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 72

Morgunn - 01.04.1920, Page 72
66 M 0E6UNN lega vera að fara; hann gengur norðaustur í kirkjugarð- inn og hverfur mér þar. — Um morguninn eftir þessa nótt fanst maðurinn, sem mig dreymdi og eg þekti í svefninum, á bryggju á Hjalt- eyri, skotinn gegn um höfuðið. Hann var jarðaður í norð~ austurhluta kirkjugarðsins hérna, nálægt þeim stað, sem. eg í svefninum sá hann hverfa mér sjónum. UII. Þribvotni gullhrmgurinn. Sumarið 1907 di’eymdi mig, að eg stæði hér á hús- tröppunum. Þykir mér maður koma ríðandi norðan hlaðið;: hann reiðir undir sér stóran poka með grænu grasi og raiklu af blómum í, en heldur á orfi með ljá í hendinni. Þá heyri eg að Sigtryggur Þorsteinsson, heimamaður hér, kallar upp norðan við húsið og segir: Æ, hvað er þetta? Hvert ætlarðu nú að fara? Komumaður svarar honum engu, en réttir út til hans aðra höndina, og var á einum fingrinum þríbrotinn gullhringur stór, og segir: Þennan hring fekk eg nú hjá Ola naínum Möller (o: bróður mín- um á Hjalteyri). I því lítur hann til mín, hvessir á mig. augun um stund, stígur svo af baki og gengur hratt að tröppunum, eins og hann ætli upp til mín. Eg varð afarhrædd, þvi að maðurinn þótti mér svo skuggalegur og ægilegur. En rétt í þessu verður honum litið, og einnig mér, suður á melana; þar koma tveir menn þeysandi al- faraveginn og stefna hingað. Gestinum bregður við þetta, hleypur á bak í fiýti, líður suður úr túninu, en tekur sneiðing austur fyrir veginn á svig við hina, meðan þeir ríða fram hjá. Þeir, sem komu, voru Guðmundur Hannes- son, fyrrum héraðslæknir á Akureyri, og fylgdarmaður haus. G. H. heilsar mér, og eg segi við hann: O, hvað> eg varð fegin að þér komuð núna; eg var svo hrædd við manninn, sem fram hjá ykkur reið; hver ætli hann sé?'

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.