Morgunn - 01.06.1925, Síða 11
MORGUNN
5
Vakna upp til nýs lífs, þó að eg geti ekki gefið yður þá
sannfæring mína. Bg hygg það kosti flesta mikla fyrirliöfn
að afla sér liennar.
Binstök dæmi eru betri til skýringar en löng lýsing í al-
mennnm orðum. Bg ætla þetta sinn ekki að fara út í ann-
að en írásögur af þeim, sem vel hafa farið með lífið. Ilin
tegundin er líka til og ekld síður lærdómsrík. En eg sleppi
að minnast á hana í þessu erindi.
Pyrst les eg yður ofurlítinn lcafla, er eg liefi þýtt úr
hinni nýju bók II. Dennis Bradley’s: Towards the Stars. Vits-
munaveran, sem segir frá, kveðst hafa lifað fyrir Krists daga
og nefnist Jóhannes:
„Það er ekki auðvelt fyrir mig að tala mn þetta við þá,
sem hafa ekki það ímyndunarafl, sem nær út yfir jörðina.
Eg hygg þú munir skilja. Pyrst af öllu: þú veizt, hvað það
er, sem gerist í dauðanum. Þú veizt, að þú varpar af þér
holdlíkamanum, og að þú ert þá þetta tvent — hugur og andi.
Þetta er fæðing fremur en dauði, og eftir að efnishjúpnum
hefir verið varpað af, eins og þið kallið það, þá kemur tími,
sem þið þurfið hvíldar. Við tökum yklcur þá — við, vernd-
arandar ykkar — og flytjum ykkur til staðar, sem ykkur
virðist dimmur og hlýr, og þar dveljist þið aðgerðalausir, unz
þið finnið, að þið eruð færir um að skilja og þola hið nýja
ásigkomulag. Eftir það haldið þið áfram inn á eitthvert lægra
sviðið og verðið þar um stund, og þar venjist þið þessu nýja
ástandi: að vera án [jarðnesks] líkama. Þið þarfnist ekki
líkamlegrar fæðu framar, en þið þarfnist skýlis og umhyggju,
og ykkur er séð fyrir því. Nú veit eg, að þig langar til, að
eg lýsi þessu. Fyrst og fremst munt þú spyrja mig, iivort
borgir séu til í þessum heimi eins og í ykkar. Ekki get eg
sagt, að svo sé. Hér hjá okkur er fólki ekki hrúgað svo af-
skaplega saman eins og hjá ykkur. Það er óhugsanlegt í því
andrúmslofti, sem við lifum í, og það sem ætti að vera ykk-
ur hugðnæmara: við lifum hér meira í samfélögum en þið
gerið. Hér sjáum vér hugi annarra og það hjálpar okkur til
að lijálpa hver öðrum. En misskiljið mig ekki. Síðasta tali-