Morgunn - 01.12.1933, Page 14
140
MOEGUNN
Nýjustu kenningar um annað líf.
Eftir Einar H. Kuaran.
Ef spurt er að, hvert sé aðalmarkmið hinna sáh’ænu
vísinda, þá finst mér skynsamlegt að svara svo, að það sé
þrískift:
1. Að rannsaka eðli sálarlífsins, og þá að sjálfsögðu
sannanir fyrir framhaldslífinu og hvort nokkur kostur sé
á að ná sambandi við annan heim.
2. Að gera oss framhaldslífið skiljanlegt.
3. Að leitast við að afla oss lífsskoðunar, sem skýrir
ekki að eins tilgang þessa jarðneska lífs, heldur líka,
hvers eðlis þroskun vor verður, eftir að sálin hefir losn-
að við jarðneska líkamann.
Bókin sem mig langar til að segja ykkur nokkuð
frá, fjallar um þessi efni. En einkum þó um 2. atriðið:
hvernig framhaldsiífinu sé háttað.
Bókin heitir The Road to Immortality (ódauðleika
leiðin). Mikill hluti hennar, sá hlutinn, sem eg geri sér-
staklega að umtalsefni, hefir verið ritaður ósjálfrátt af
konu, sem heitir Geraldine Cummins. Hún er áður fræg
fyrir ósjálfráð skrif sín. Tvö allstór bindi af þeim hafa
komið út, Skrif Cleophasar og Páll í Aþenuborg. Þriðja
bindið, sem heyrir því sama efni til, hefir enn ekki verið
prentað. Þessar bækur eru postulasaga, miklu lengri og
nákvæmari en sú postulasaga, sem er í nýjatestamentinu.
Þessar bækur hafa verið gagnrýndar vandlega af sér-
fræðingum. Og þó að á mörgu væri hægt að villast í
samningu slíkra rita, hefir engin söguleg villa fundist í
þeim. Þetta er því merkilegra, sem Miss Cummins hafði
enga þekkingu á þessum efnum, né heldur hefði hugur
hennar með neinum hætti að þeim hneigst. Hún er íþrótta-
kona, höfundur einnar skáldsögu, og hefir í samvinnu við